Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fös 17. október 2014 11:06
Magnús Már Einarsson
Balotelli: Stunda ekki kynlíf fjórum tímum fyrir leiki
,,Ef ég myndi stunda kynlíf fjórum tímum fyrir leik þá gæti ég ekki spilað.
,,Ef ég myndi stunda kynlíf fjórum tímum fyrir leik þá gæti ég ekki spilað."
Mynd: Getty Images
Mario Balotelli, framherji Liverpool, segir ekki rétt að hann stundi alltaf kynlíf þremur tímum fyrir leiki.

,,Einhver sagði við mig nýlega að ég hefði sagt að ég stundaði alltaf kynlíf þremur eða fjórum tímum fyrir leiki til að spila betur," sagði Balotelli.

,,Treystið mér. Ef ég myndi stunda kynlíf fjórum tímum fyrir leik þá gæti ég ekki spilað. Þetta fær mig til að hlægja."

,,Ég einbeiti mér bara að fótboltanum. Ég bý í sveitasælunni og er rólegur."

,,Ég vona bara að ég fari að skora fljótlega. Þá munu fjölmiðlar kannski einbeita sér meira að fótboltanum en ekki að þessu kjaftæði."

Athugasemdir
banner
banner
banner