Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mán 18. maí 2015 15:00
Magnús Már Einarsson
Steven Reid leggur skóna á hilluna
Mynd: Getty Images
Steven Reid, leikmaður Burnley, hefur ákveðið að leggja skóna á hilluna eftir tímabilið.

Reid er 34 ára gamall hægri bakvörður en hann hefur spilað í ensku úrvalsdeildinni í áraraðir.

„Það er með trega sem ég greini frá því að ég mun hætta eftir tímabilið," sagði Reid á Twitter í dag.

Reid spilaði með Blackburn frá 2003 til 2010 en þaðan fór hann til WBA.

Hann gekk síðan til liðs við Burnley fyrir þetta tímabil en hann hefur lítið komið við sögu þar.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner