Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   fös 19. desember 2014 09:00
Daníel Freyr Jónsson
Florentino Perez vill framlengja við Ancelotti
Carlo Ancelotti.
Carlo Ancelotti.
Mynd: Getty Images
Florentino Perez, forseti Evrópumeistara Real Madrid, segist vilja framlengja samning stjórans Carlo Ancelotti.

Ancelotti tók við Real á síðasta ári og hefur gengi liðsins verið ótrúlegt undir hans stjórn.

Ítalinn gerði félagið að Evrópumeisturum á sinni fyrstu leiktíð. Hann stýrir núna liðinu á Heimsmeistaramóti félagsliða sem fram fer í Marokkó á meðan liðið hefur unnið 21 leik í röð í öllum keppnum.

,,Við myndum glaðir vilja framlengja samning hans við lok tímabilsins," sagði Perez við fjölmiðla í Marokkó.

,,Það er furðulegt að vilja endurnýja svona stuttu eftir að hann kom. Hann veit það en það verða engin vandamál. Það voru sumir sem efuðust um hann en ég vildi alltaf fá hann."
Athugasemdir
banner
banner
banner