Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   lau 20. janúar 2018 21:00
Gunnar Logi Gylfason
Poyet tekinn við Bordeaux (Staðfest)
Gus Poyet er tekinn við Bordeaux
Gus Poyet er tekinn við Bordeaux
Mynd: Getty Images
Hinn úrúgvæski Gus Poyet hefur tekið við Bordeaux sem situr í 11. sæti frönsku úrvalsdeildarinnar.

Poyet, sem sagði upp störfum hjá kínverska félaginu Shanghai Shenhua í september síðastliðnum, tekur við liðinu af Jocelyn Gourvennec.

Á leikmannaferli sínum spilaði Poyet meðal annars með Chelsea og Tottenham. Hann fær Mauricio Taricco, fyrrum liðsfélaga sinn hjá Tottenham, og Fernando Menegazzo sér til aðstoðar.

Poyet hefur þjálfað lið á borð við Brighton & Hove Albion og Sunderland en hann varð fyrsti Úrúgvæinn til að þjálfa í ensku úrvalsdeildinni þegar hann tók við Sunderland í október árið 2013.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner