Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   þri 21. október 2014 11:00
Magnús Már Einarsson
Ancelotti segir að baul á Anfield muni gera Ronaldo betri
Ronaldo hefur spilað fimm leiki á Anfield án þess að skora.
Ronaldo hefur spilað fimm leiki á Anfield án þess að skora.
Mynd: Getty Images
Carlo Ancelotti, þjálfari Real Madrid, segir að stuðningsmenn Liverpool muni ekki hafa áhrif á Cristiano Ronaldo ef þeir baula á Portúgalann í leik liðanna á Anfield á morgun.

Ronaldo spilaði í sex ár með erkifjendum Liverpool í Manchester United og hann gæti fengið óblíðar móttökur á Anfield á morgun.

Ancelotti segir að það muni ekki hafa slæm áhrif á Ronaldo ef stuðningsmenn Liverpool baula á hann.

,,Nei, ha, ha. Hann verður ennþá ákveðnari í að standa sig því að þetta er Liverpool," sagði Ancelotti.

,,Cristiano er alltaf mjög ákveðinn í að standa sig en ef andrúmsloftið er fjandsamlegt þá gerir það hann ennþá ákveðnari."
Athugasemdir
banner
banner