Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fös 22. júlí 2016 13:28
Magnús Már Einarsson
Swansea gæti boðið í Joe Allen
Mynd: Getty Images
Swansea er að íhuga að leggja fram tilboð í Joe Allen, miðjumann Liverpool.

Liverpool hefur samþykkt 13 milljóna punda tilboð frá Stoke í Allen.

Swansea er að íhuga að bjóða sömu upphæð í von um að krækja aftur í Allen.

Allen fór frá Swansea til Liverpool árið 2012 á fimmtán milljónir punda.

Swansea er einnig að skoða Nacer Chadli leikmann Tottenham en hann gæti komið á fimmtán milljónir punda.
Athugasemdir
banner
banner