Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fös 22. júlí 2016 14:04
Magnús Már Einarsson
Valur og Stjarnan bjóða í Hólmbert
Mynd: Fótbolti.net - Tomasz Kolodziejski
Valur og Stjarnan hafa bæði lagt fram tilboð í Hólmbert Aron Friðjónsson, framherja KR, samkvæmt heimildum 433.is.

Hólmbert kom til KR frá Celtic fyrir ári síðan en hann hefur ekki náð að skora í tíu leikjum í Pepsi-deildinni í sumar.

KR fékk Jeppe Hansen í sínar raðir frá Stjörnunni í síðustu viku og Garðbæingar vilja nú fá framherja til að fylla skarð Danans og berjast við Guðjón Baldvinsson um stöðu í liðinu.

Valur er í leit að framherja en Gary Martin hefur verið orðaður við félagið að undanförnu og að sögn 433.is hefur Hlíðarendafélagið líka verið að skoða Jonathan Glenn sem gæti verið á förum frá Breiðabliki.
Athugasemdir
banner
banner