Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
Haraldur Freyr: Leikurinn spilast eins og við vildum
Höskuldur: Fannst þeir ofan á í grunnatriðum leiksins
Sami Kamel: Þurftum bara að beisla þessa jákvæðu orku
Dóri Árna: Ótrúlega andlaust og ekki líkt liðinu sem ég þekki
Hallgrímur Jónasson: Við stöndum saman sem lið
Árni Freyr: Mér fannst þetta vera víti
Breki Baldurs: Ég er mjög hrifinn af þessu kerfi
Arnar Gunnlaugs: Ótrúlegasta mark sem ég hef séð á þessum velli
Sveinn Þór: Ég held að við höfum aðeins sjokkerað þá pínulítið
Baldvin Borgars: Virkilega sáttur með frammistöðuna hjá mínum mönnum
Rúnar Kristins: Þeir lögðu mikla vinnu í þetta og veittu okkur mjög erfiðan leik
Jökull: Pirrandi leikur
Hetja HK kíkir ekkert niður í bæ: Ekkert mikið að gera þar miðað við í London
Hrannar Bogi eftir hetjulega frammistöðu Augnabliks: Við nálgumst leiki alltaf alveg eins
Fékk afmælisgjöf fyrir leikinn: Ég fékk Þróttaratrefil og nokkrar Stellur
Nýir tímar í Laugardalnum - „Finnst bara tilvalið að með því fylgi nýtt merki“
Haukur Páll: Ekki spurning um að koma mönnum fyrir
Heimir Guðjóns: Hefði verið gult spjald í fyrra
Gylfi Þór: Skrítið að spila gegn liði sem ég var hjá í 10 ár
Úlli: Fékk held ég nóg af liðsfélögum sínum
   mán 22. ágúst 2016 22:34
Alexander Freyr Tamimi
Óli Jó: Ég er nú bara eins og ég er
Óli Jó og félagar unnu góðan sigur.
Óli Jó og félagar unnu góðan sigur.
Mynd: Fótbolti.net - J.L.
Ólafur Jóhannesson, þjálfari Vals, var ánægður eftir 4-0 sigur sinna manna gegn Þrótti í Pepsi-deildinni í kvöld.

Lestu um leikinn: Þróttur R. 0 -  4 Valur

„Við komum bara fínir inn í þennan leik, vel stemmdir og gott hugarfar og uppskárum góðan sigur. Mér fannst við hafa töglin og hagldirnar lungan af leiknum. Auðvitað vissum við að þeir væru að berjast fyrir lífi sínu og stundum er erfitt að fókusera gegn svoleiðis liðum en við gerðum það mjög vel og kláruðum leikinn," sagði Ólafur við Fótbolta.net.

„Við getum spilað ágætis fótbolta þegar sá gállinn er á okkur," bætti hann við þegar hann var spurður út í mikla markaskorun sinna manna.

Valsmenn hafa þegar tryggt sér Evrópusæti með því að verða bikarmeistarar en hafa þrátt fyrir það unnið tvo deildarleiki samtals 11-0 í kjölfarið.

„Við verðum að sýna deildinni virðingu, bæði öðrum liðum og deildinni, þannig við förum alltaf inn í leikina til að gera okkar besta," sagði Ólafur.

Vel heyrðist í Ólafi á hliðarlínunni úr blaðamannaskýlinu og virtist honum nokkuð heitt í hamsi undir lok leiks þó að hans menn væru vel yfir.

„Ég er nú bara eins og ég er. Það er ekkert hægt að fara að diskútera það, stundum segi ég eitthvað og stundum ekki, það er nú bara eins og það er," sagði Ólafur.
Athugasemdir
banner
banner
banner