Ivan Gazidis og Sven Mislintat skoða bílinn. Silfurbílinn sem hann á í dag er af gerðinni Porsche Panamera Turbo Techart.
Ensku slúðurblöðin eru spennt fyrir mögulegum kaupum Arsenal á Pierre-Emerick Aubameyang, ekki síst í ljósi þess að hann hefur allt að bera til að fylla síður þeirra í hverri viku.
Aubameyang hefur farið nokkrum sinnum í agabann hjá Dortmund og þá elskar hann lífið utan vallar sem stórstjarna. Fatastíll hans þykir skemmtilegur og hann elskar dýra og flotta bíla sem vekja athygli.
Silfurbíll sem Aubameyang á hefur fengið sitt pláss í ensku pressunni. Hann vekur einnig athygli Ivan Gazidis, framkvæmdastjóra Arsenal, og hans manna. Birst hafa myndir af þeim þar sem þeir eru í Þýskalandi og virðast heillaðir af bílnum.
Arsenal er að leggja allt kapp á að fá Aubameyang og hefur myndin hér að neðan vakið athygli. Þar sést sóknarmaðurinn vera að henda kössum og öðru inn í bílinn. Er verið að búa sig undir flutning til London?
.@Aubameyang7 packt. Pakete. 🤓 (Foto: @DirkKrampe) pic.twitter.com/F10f94dM6A
— Ruhr Nachrichten BVB (@RNBVB) January 23, 2018
Ef Aubameyang fer til Arsenal verða hann og Henrikh Mkhitaryan samherjar á ný. Þeir spiluðu saman í þrjú ár hjá Dortmund, frá 2013.
Athugasemdir