Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
Haraldur Freyr: Leikurinn spilast eins og við vildum
Höskuldur: Fannst þeir ofan á í grunnatriðum leiksins
Sami Kamel: Þurftum bara að beisla þessa jákvæðu orku
Dóri Árna: Ótrúlega andlaust og ekki líkt liðinu sem ég þekki
Hallgrímur Jónasson: Við stöndum saman sem lið
Árni Freyr: Mér fannst þetta vera víti
Breki Baldurs: Ég er mjög hrifinn af þessu kerfi
Arnar Gunnlaugs: Ótrúlegasta mark sem ég hef séð á þessum velli
Sveinn Þór: Ég held að við höfum aðeins sjokkerað þá pínulítið
Baldvin Borgars: Virkilega sáttur með frammistöðuna hjá mínum mönnum
Rúnar Kristins: Þeir lögðu mikla vinnu í þetta og veittu okkur mjög erfiðan leik
Jökull: Pirrandi leikur
Hetja HK kíkir ekkert niður í bæ: Ekkert mikið að gera þar miðað við í London
Hrannar Bogi eftir hetjulega frammistöðu Augnabliks: Við nálgumst leiki alltaf alveg eins
Fékk afmælisgjöf fyrir leikinn: Ég fékk Þróttaratrefil og nokkrar Stellur
Nýir tímar í Laugardalnum - „Finnst bara tilvalið að með því fylgi nýtt merki“
Haukur Páll: Ekki spurning um að koma mönnum fyrir
Heimir Guðjóns: Hefði verið gult spjald í fyrra
Gylfi Þór: Skrítið að spila gegn liði sem ég var hjá í 10 ár
Úlli: Fékk held ég nóg af liðsfélögum sínum
   fös 23. mars 2018 12:00
Hafliði Breiðfjörð
Santa Clara
Elmar: Fyrsta tímabilið á ferlinum sem ég spila bara eina stöðu
Icelandair
Elmar á landsliðsæfingu í vikunni.
Elmar á landsliðsæfingu í vikunni.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Þetta er lið sem við erum ekki vanir að spila á móti en mjög sterkt lið og þetta verður bara spennandi," sagði Theódór Elmar Bjarnason leikmaður Íslands en liðið mætir Mexíkó í vináttulandsleik í Santa Clara í nótt.

„Það er gott að prófa sig gegn öllum heimshálfum. Það er öðruvísi aðferðarfræði þar og og fínt fyrir okkur að prófa. Við erum með Argentínu í riðli og ég held að taktíkin sé ekkert ósvipuð. Ég held að það séu 30% Mexíkóar í Santa Clara svo það varður örugglega uppselt á leikinn og góð stemmning og skemmtilegt."

Elmar spilar með Elazgispor í tyrknesku B-deildinni þar sem hann hefur átt fast sæti á miðri miðjunni.

„Ég spila alla leiki þegar ég er heill en varð fyrir því óláni að misstíga mig fyrr í mánuðinum og er að jafna mig á því. Ég er í góðu standi og spenntur fyrir leikjunum. Þetta er fyrsta tímabilið á mínum ferli þar sem ég spila bara eina stöðu, allan tímann á miðju. Það hefur gefið mér rosalega mikið og ég er að spila mitt besta tímabil. Það er mikivægt að vera í takti og fá að halda áfram á einum stað. Svo er það allt annað þegar maður kemur í landsliðið, þá er maður tilbúinn að leysa hvað sem er."

Elmar er fjölhæfur leikmaður og getur spilað margar stöður á vellinum, við spurðum hann út í það.

„Það er plús og mínus að geta spilað margar stöður. Það er plús þegar maður er í svona góðum hóp og mikil samkeppni en það kemur kannski niður á því að maður fái þessa rútínu og venju sem gerir það að verkum að maður viti nákvæmlega hvað maður á að gera. Plús og mínus en með landsliðinu tekur maður hvað sem er," sagði hann að lokum.
Athugasemdir
banner