Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   þri 23. maí 2017 11:00
Magnús Már Einarsson
Man Utd aflýsir fréttamannafundi - Mínútu þögn fyrir æfingu
Mynd: Getty Images
Manchester United hefur aflýst fréttamannafundi sem átti að fara fram í dag fyrir úrslitaleik Evrópudeildarinnar gegn Ajax annað kvöld.

Félagið ákvað þetta eftir sprengjuárás á tónleikum Ariana Grande í Manchester í gær en 22 eru látnir og 59 slasaðir eftir sprenginguna.

„Við erum viss um að allir skilji að við tökum þessa ákvörðun undir þessum kringumstæðum," sagði í yfirlýsingu frá United.

„Hugur okkar er hjá fórnarlömbum og fjölskyldum þeirra á þessum hrikalega erfiðu tímum."

Mínútu þögn var fyrir æfingu United í morgun til minningar um þá sem létust í gærkvöldi.








Athugasemdir
banner
banner