Guimaraes, Isak, Kimmich, Diaz, Branthwaite, Mainoo og fleiri góðir í slúðri dagsins
   fös 24. febrúar 2017 11:15
Magnús Már Einarsson
Pistill: Pistlar á Fótbolta.net eru viðhorf höfundar og þurfa ekki endilega að endurspegla viðhorf vefsins eða ritstjórnar hans.
Braut reglur FIFA og skaut síðan á aðra
Magnús Már Einarsson
Magnús Már Einarsson
Sigurður Ragnar Eyjólfsson.
Sigurður Ragnar Eyjólfsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Sigurður Ragnar Eyjólfsson kom Íslandi tvívegis í lokakeppni EM á sínum tíma.
Sigurður Ragnar Eyjólfsson kom Íslandi tvívegis í lokakeppni EM á sínum tíma.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Isabell Herlovsen samdi við Jiangsu Suning á dögunum.  Hún gaf um leið norska landsliðsferilinn upp á bátinn.
Isabell Herlovsen samdi við Jiangsu Suning á dögunum. Hún gaf um leið norska landsliðsferilinn upp á bátinn.
Mynd: Getty Images
Sigurður Ragnar Eyjólfsson, fyrrum landsliðsþjálfari kvenna, hljóp illa á sig í viðtali við Fréttatímann í morgun. Sigurður Ragnar skaut þar föstum skotum á Frey Alexandersson núverandi landsliðsþjálfara kvenna og sakaði hann meðal annars um fordóma.

Sigurður áttaði sig fljótlega á því að hann hafði gert mistök og í kjölfarið sendi hann afsökunarbeiðni á Frey og fjölmiðla. Það að biðjast afsökunar var vel gert hjá Sigurði en hins vegar má ekki skauta framhjá alvarlegum ásökunum hans án þess að skoða málið nánar.

Í viðtalinu í Fréttatímanum gefur Sigurður Ragnar í skyn að Freyr hafi haft áhrif á það að Dagný Brynjarsdóttir og Hallbera Guðný Gísladóttir ákváðu að ganga ekki í raðir Jiangsu Suning þegar Sigurður Ragnar reyndi að fá þær til félagsins á dögunum. Báðir leikmennirnir hafa neitað því að Freyr hafi haft eitthvað með þá ákvörðun að gera.

Ræddi ólöglega við leikmenn
Í fyrsta lagi braut Sigurður reglur FIFA með því að ræða við samningsbundna leikmenn. Það liggur fyrir. Dagný er samningsbundin Portland Thorns í bandarísku deildinni og Hallbera er samningsbundin Djurgarden í Svíþjóð. Því var það kolólöglegt þegar Sigurður Ragnar ræddi við þær. Fótbolti.net hefur einnig fengið spurnir af því að Sigurður hafi heyrt í fleiri samningsbundnum leikmönnum íslenska landsliðsins. Þó að það sé mikill peningur í Kína þá gefur það Sigurði Ragnari ekkert leyfi til að ræða ólöglega við leikmenn.

Árið 2017 er risastórt ár hjá íslenska kvennalandsliðinu en EM fer fram í Hollandi í sumar og allir leikmenn liðsins eru einbeittir á það verkefni. Það var langskot hjá Sigurði Ragnari að reyna að fá íslenska leikmenn til að skipta algjörlega um umhverfi fyrir svona stórt verkefni. Að reyna að ræða við samningsbundna leikmenn og trufla þá þannig er mjög alvarlegt. Ennþá alvarlegra er síðan að koma með ásakanir í fjölmiðlum sem eiga ekki rétt á sér. Kvennalandsliðinu hefur vegnað frábærlega undanfarin ár og gengi liðsins í undankeppninni var eins og í sögu. Af hverju vill Sigurður Ragnar hefja stríð í fjölmiðlum núna, þegar nokkrir mánuðir eru í EM? Sjálfur gerði Sigurður Ragnar frábæra hluti með íslenska landsliðið á sínum tíma og kom því tvívegis í úrslitakeppni EM. Ég leyfi mér hins vegar að efast um að hann hefði verið ánægður ef þjálfari í Kína hefði verið að trufla leikmenn með ólöglegum viðræðum nokkrum mánuðum fyrir mót.

Er Noregur allt öðruvísi en Ísland?
Á dögunum samdi hin norska Isabell Herlovsen við Jiangsu Suning þar sem hún mun leika undir stjórn Sigurðar. Isabell hefur verið í norska landsliðinu undanfarin ár en með því að fara til Kína fórnaði hún landsliðsferlinum. Isabell fær betri laun en það gengur ekki að vera í landsliði Noregs og að spila í Kína. Styrkleikinn á kínversku deildinni spilar þar inn í sem og erfið ferðalög í landsleiki. Engar sérstakar spurningar voru settar við þetta í Noregi og sjálf var Isabell ekki að kvarta. Hún áttaði sig á því að landsliðsferlinum væri lokið eftir undirskriftina í Kína. Af hverju ætti það sama ekki að ganga yfir íslenska leikmenn?

Landsliðskonur frá Evrópu eru ekki að leita í kínversku deildina enda eru margar aðrar deildir í heiminum öflugri í dag. Íslenskar landsliðskonur eru flestar í mjög öflugum liðum í Evrópu þar sem þær fá krefjandi verkefni og líkar vel. Þó að peningurinn sé meiri í Kína þá er peningurinn ekki allt. Íslenskar landsliðskonur hafa mikinn metnað og vilja vera á sem bestum stað til að bæta sig sem leikmenn. Það var því afskaplega dapurt hjá Sigurði Ragnari að fara að kvarta í viðtali yfir því að leikmenn hafi ekki viljað koma til hans. Það er þeirra val.

Fjarlægðin á milli Kína og Íslands er mikil. Það að fara í landsliðsverkefni tekur langan tíma og ferðalagið í aðdraganda landsleiks myndi klárlega hafa mikil áhrif á leikmenn. Kínverska deildin er ennþá algjörlega óskrifað blað í styrkleika og fótboltinn þar er allt öðruvísi en í Evrópu.

Ofan á þetta allt þá er kínverska deildin í gangi þegar EM fer fram í sumar. Ljóst er að leikmaður í kínversku deildinni myndi missa af stórum hluta deildarinnar ef hann færi að taka þátt á EM. Því væri það mjög vont fyrir Sigurð að hafa leikmann í sínu liði sem spilar á EM. Sigurður er búinn að fá Isabell frá Noregi sem og liðsstyrk frá Brasilíu. Er það ekki bara fínt? Af hverju í ósköpunum að kvarta núna? Væri ekki ráð að fagna því frekar að íslenskar landsliðskonur séu sáttar hjá þeim flottu liðum sem þeir eru í og einbeittar á það að gera góða hluti á EM í sumar?
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner