Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   þri 25. apríl 2017 13:39
Elvar Geir Magnússon
Höddi Magg og félagar með leiksigur í nýrri auglýsingu
Hjörvar Hafliðason, Höddi Magg og Óskar Hrafn Þorvaldsson.
Hjörvar Hafliðason, Höddi Magg og Óskar Hrafn Þorvaldsson.
Mynd: Stöð 2 Sport
Ný auglýsing fyrir Pepsi-mörkin var frumsýnd í dag en hún hefur vakið mikla kátínu. Hægt er að sjá auglýsinguna hér að neðan.

Hörður Magnússon og hans menn vinna leiksigur í þessari nýju auglýsingu en Hörður hefur leikaragenið í sér enda sonur stórleikarans Magnúsar Ólafssonar.

„Alltaf þegar maður er búinn að leika í þessari auglýsingu þá fær maður tilfinninguna að nú sé þetta að byrja. Auglýsingin kom mér á óvart og er betri en ég átti von á," sagði Hörður í viðtali í útvarpsþætti Fótbolta.net en þar fór hann vel yfir það hvernig íslenski boltinn verður matreiddur á Stöð 2 Sport í sumar.

Í auglýsingunni koma meðal annars við sögu naktir leikmenn Víkings, B5 og brandarabók Loga.

Upphitunarþáttur Pepsi-markanna verður klukkan 20 á föstudagskvöld á Stöð 2 Sport, í opinni dagskrá.


Athugasemdir
banner
banner
banner