Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mán 25. desember 2017 10:00
Ívan Guðjón Baldursson
Otamendi framlengir við City
Mynd: Getty Images
Argentinski varnarmaðurinn Nicolas Otamendi er búinn að skrifa undir nýjan samning við Manchester City.

Otamendi hefur verið frábær á tímabilinu og er Man City með þrettán stiga forystu á toppi deildarinnar eftir hálft tímabil.

Nýi samningurinn rennur út 2022 og er Otamendi því samningsbundinn til 34 ára aldurs.

Varnarmaðurinn er búinn að leika lykilhlutverk á tímabilinu og hefur komið við sögu í 18 af 19 deildarleikjum.

Hann kom frá Valencia fyrir tveimur árum og á 51 landsleik að baki fyrir Argentínu.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner