Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fim 26. febrúar 2015 16:05
Magnús Már Einarsson
Heimild: Vísir 
Ásgerður Stefanía á leið til Kristanstad
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ásgerður Stefanía Baldursdóttir, fyrirliði Íslands og bikarmeistaranna Stjörnunnar, er líklega á leið til Kristianstad í Svíþjóð en þetta kemur fram á vef Vísis.

Ásgerður gerði nýjan samning við Stjörnuna í haust en í þeim samningi var ákvæði um að hún gæti farið kæmi tilboð frá erlendu félagi.

Undanfarin ár hefur Ásgerður verið í algjöru lykilhlutverki hjá Stjörnunni.

Elísabet Gunnarsdóttir þjálfar Kristianstad en Margrét Lár aog Elísa Viðarsdætur spila með liðinu sem og Guðný Björk Óðinsdóttir og Sif Atladóttir.
Athugasemdir
banner