Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   fös 26. júní 2015 17:55
Elvar Geir Magnússon
Færeyskur dómari dæmir leik Fjölnis og FH
Færeyskur dómari í Grafarvogi á sunnudag.
Færeyskur dómari í Grafarvogi á sunnudag.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Færeyski dómarinn Eiler Rasmussen verður við störf hér á landi næstu dag og dæmir hér tvo leiki.

Hann dæmir leik KV og Njarðvíkur í 2. deild karla í kvöld, föstudaginn 26. júní og á sunnudaginn dæmir hann leik Fjölnis og FH í Pepsi-deild karla.

Þessi dómaraskipti eru hluti af verkefni norrænu knattspyrnusambandanna varðandi samstarf í dómaramálum.

Eiler er fæddur 1977 og hefur dæmt í Færeyjum í fjöldamörg ár.
Athugasemdir
banner
banner