Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mán 26. júní 2017 22:45
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Donnarumma: Aðgangurinn minn var hakkaður
Donnarumma er mikið í fréttum.
Donnarumma er mikið í fréttum.
Mynd: Getty Images
Gianluigi Donnarumma, markvörður AC Milan, er hættur á Instagram eftir að aðgangur hans var hakkaður í gær.

Færsla var sett inn á aðgang Donnarumma, en hann segist ekki hafa verið á bak við hana.

„Ég vil koma skilyrðislausri ást minni á AC Milan og aðdáendum liðsins á framfæri," stóð í færslunni sem var síðar eytt. „Ég lofa að ræða við félagið um framlengingu eftir Evrópumótið."

Donnarumma segist ekki hafa skrifað þetta. Hann er þessa stundina ekki í uppáhaldi hjá stuðningsömmnum AC Milan þar sem hann vill ekki skrifa undir nýjan samning.

„Aðgangurinn minn var hakkaður," skrifaði hann síðan á Twitter, en tístið má sjá hér að neðan.



Athugasemdir
banner
banner
banner
banner