Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   mán 27. apríl 2015 18:38
Ívan Guðjón Baldursson
Myndband: Arnór Ingvi með glæsilegt mark í sænska boltanum
Arnór, sem verður 22 ára á fimmtudaginn, á 12 landsleiki að baki fyrir U21 landslið Íslands.
Arnór, sem verður 22 ára á fimmtudaginn, á 12 landsleiki að baki fyrir U21 landslið Íslands.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Norrköping er 4-1 yfir gegn Gefle í sænsku efstu deildinni og er Arnór Ingvi Traustason búinn að gera tvö mörk í leiknum.

Seinna mark Arnórs, sem kom Norrköping í 3-0, var einstaklega laglegt og má sjá hér fyrir neðan.

Arnór er byrjunarliðsmaður hjá Norrköping sem er með sjö stig eftir fimm umferðir, takist liðinu að halda forystunni síðasta korterið gegn Gefle.

Arnór spilar á miðjunni og var keyptur til sænska félagsins í fyrra eftir góða frammistöðu með Keflavík í íslenska boltanum.

Markið má sjá hér



Athugasemdir
banner
banner