Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mán 27. júlí 2015 09:21
Magnús Már Einarsson
Van Gaal gæti hætt árið 2017 fyrir eiginkonu sína
Louis van Gaal.
Louis van Gaal.
Mynd: Getty Images
Louis van Gaal, stjóri Manchester United, gæti hætt með liðið þegar þriggja ára samningur hans rennur út árið 2017.

Hollendingurinn segir að eiginkona sín, Truus, verði mjög reið ef hann hættir ekki.

„Ég er búinn að lofa konunni minni (að hætta 2017). Við eigum ekki mörg ár eftir saman. Það er ástæðan," sagði hinn 63 ára gamli van Gaal.

„Ég hef gert allt á ferli mínum. Þegar ég hitti hana lofaði ég því að hætta 55 ára. Ég er ennþá að vinna og á næsta ári verð ég 64 ára."

„Eina ósk mín var að vinna í ensku úrvalsdeildinni og núna er ég hér. Verð ég að fara til Katar til fá meiri pening? Það held ég ekki. Þú verður líka að njóta lífsins og sambandsins við eiginkonu þína."

Athugasemdir
banner
banner