Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mið 28. janúar 2015 15:26
Elvar Geir Magnússon
Bocchetti til AC Milan (Staðfest)
Salvatore Bocchetti.
Salvatore Bocchetti.
Mynd: Getty Images
Salvatore Bocchetti er orðinn leikmaður AC Milan. Hann kemur frá Spartak Moskvu á lánssamningi til sumars.

Miðvörðurinn flaug til Mílanó í gær og gekkst undir læknisskoðun í morgun sem heppnaðist vel.

Þessi 29 ára varnarmaður er fyrrum leikmaður Genoa og Rubin Kazan.

AC Milan er í bölvuðu basli í ítölsku A-deildinni, situr nú í ellefta sæti og hefur mistekist að vinna sigur á þessu ári.
Athugasemdir
banner
banner
banner