Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   þri 29. júlí 2014 21:30
Brynjar Ingi Erluson
Schneiderlin lætur Southampton heyra það á Twitter
Mynd: Getty Images
Morgan Schneiderlin, leikmaður Southampton á Englandi, er brjálaður út í félagið þessa stundina en það vill ekki leyfa honum að fara til Tottenham Hotspur.

Southampton hefur verið duglegt að selja leikmenn liðsins í sumar en þar má nefna þá Rickie Lambert, Adam Lallana, Calum Chambers, Luke Shawe og Dejan Lovren.

Tottenham Hotspur var við það að krækja í Morgan Schneiderlin og Jay Rodriguez þá frá Southampton en stjórnarmenn félagsins höfnuðu því og var greint frá því að þessir leikmenn komi til með að spila fyrir Southampton á komandi tímabili.

Schneiderlin er brjálaður út í félagið og birti þessa færslu hér fyrir neðan á samskiptavef Twitter.

,,Frábæru sex ára ferðalagi hjá Southampton rústað á klukkutíma," sagði Schneiderlin.



Athugasemdir
banner
banner
banner