Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   lau 30. maí 2015 05:55
Stefán Haukur
England í dag - Bikarúrslitaleikur á Wembley
Ver Arsenal bikarmeistaratitilinn?
Ver Arsenal bikarmeistaratitilinn?
Mynd: Getty Images
Leikur dagsins
16:30 Arsenal - Aston Villa (Stöð 2 Sport)

Arsenal og Aston Villa mætast í dag í úrslitum ensku bikarkeppninnar en Arsenal getur með sigri varið bikarinn sem þeir unnu fyrir ári þegar þeir komu til baka í leik gegn Hull City í úrslitunum.

Arsenal hefur ekki farið auðveldustu leiðina að úrslitunum en Manchester United og Hull City eru einu úrvalsdeildarliðin sem þeir hafa mætt í bikarnum hingað til.

Danny Welbeck, sóknarmaður Arsenal, tekur ekki þátt í leiknum í dag en hann er meiddur á hné.

Leikurinn hefst klukkan 16:30 og verður sýndur á Stöð 2 Sport.
Athugasemdir
banner
banner