Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
Haraldur Freyr: Leikurinn spilast eins og við vildum
Höskuldur: Fannst þeir ofan á í grunnatriðum leiksins
Sami Kamel: Þurftum bara að beisla þessa jákvæðu orku
Dóri Árna: Ótrúlega andlaust og ekki líkt liðinu sem ég þekki
Hallgrímur Jónasson: Við stöndum saman sem lið
Árni Freyr: Mér fannst þetta vera víti
Breki Baldurs: Ég er mjög hrifinn af þessu kerfi
Arnar Gunnlaugs: Ótrúlegasta mark sem ég hef séð á þessum velli
Sveinn Þór: Ég held að við höfum aðeins sjokkerað þá pínulítið
Baldvin Borgars: Virkilega sáttur með frammistöðuna hjá mínum mönnum
Rúnar Kristins: Þeir lögðu mikla vinnu í þetta og veittu okkur mjög erfiðan leik
Jökull: Pirrandi leikur
Hetja HK kíkir ekkert niður í bæ: Ekkert mikið að gera þar miðað við í London
Hrannar Bogi eftir hetjulega frammistöðu Augnabliks: Við nálgumst leiki alltaf alveg eins
Fékk afmælisgjöf fyrir leikinn: Ég fékk Þróttaratrefil og nokkrar Stellur
Nýir tímar í Laugardalnum - „Finnst bara tilvalið að með því fylgi nýtt merki“
Haukur Páll: Ekki spurning um að koma mönnum fyrir
Heimir Guðjóns: Hefði verið gult spjald í fyrra
Gylfi Þór: Skrítið að spila gegn liði sem ég var hjá í 10 ár
Úlli: Fékk held ég nóg af liðsfélögum sínum
   fös 30. september 2016 18:59
Mist Rúnarsdóttir
Óli Brynjólfs: Fyrsta liðið sem vinnur Breiðablik í tvö ár
Ólafur er ánægður með uppskeru sumarsins
Ólafur er ánægður með uppskeru sumarsins
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ólafur Brynjólfsson þjálfari Vals var að vonum ánægður eftir sigurleikinn gegn Breiðablik í lokaumferð Pepsi-deildarinnar. Honum fannst leikskipulag Vals ganga upp og segist sáttur við sumarið.

Lestu um leikinn: Valur 1 -  0 Breiðablik

„Ég gríðarlega ánægður með það sem við höfum gert í sumar. Við erum með 39 stig. Jafnmörg stig og Íslandsmeistararnir frá því í fyrra í 2. sæti. Það er ekki spurning að það er hægt að byggja ofan á þetta.“

En hvernig fannst Ólafi leikurinn?

„Hann spilaðist bara eins og við vildum. Við lágum bara niðri. Vorum ekki að spila fallegan fótbolta í dag og ætluðum ekkert að gera það. Ætluðum bara að halda okkar marki hreinu og það gekk eftir.“

„Við byrjuðum mjög hressilega og ég held að það hafi komið þeim á óvart hvernig við spiluðum. Við lokuðum á þær í öllum svæðum nánast og lokuðum vel á Hallberu og Fanndísi. Fyrsta liðið sem vinnur Breiðablik í tvö ár. Það er mjög gaman.“

Ólafur vonast til að vera áfram með liðið en hann mun funda með stjórninni fljótlega og fara yfir þau mál.

„Ég vil vera áfram með liðið en það er undir stjórn komið hvað gerist. Við munum örugglega setjast niður bráðlega og fara yfir árangur liðsins og svo framvegis,“ sagði Ólafur meðal annars en hægt er að horfa á allt viðtalið við hann í sjónvarpinu hér að ofan.
Athugasemdir
banner
banner
banner