Samsungvöllurinn
laugardagur 01. apríl 2023  kl. 16:00
Lengjubikar kvenna - A-deild úrslit
Aðstæður: Kuldalegt og grátt yfir
Dómari: Helgi Mikael Jónasson
Áhorfendur: 223
Stjarnan 7 - 6 Þór/KA
0-1 Sandra María Jessen ('14)
1-1 Snædís María Jörundsdóttir ('34)
1-2 Hulda Ósk Jónsdóttir ('62)
2-2 Ólína Ágústa Valdimarsdóttir ('76)
2-3 Jakobína Hjörvarsdóttir ('93, víti)
3-3 Jasmín Erla Ingadóttir ('93, víti)
3-4 Sandra María Jessen ('93, víti)
4-4 Heiða Ragney Viðarsdóttir ('93, víti)
4-4 Hulda Ósk Jónsdóttir ('93, misnotað víti)
5-4 Andrea Mist Pálsdóttir ('93, víti)
5-5 Tahnai Lauren Annis ('93, víti)
6-5 Alma Mathiesen ('93, víti)
6-6 Hulda Björg Hannesdóttir ('93, víti)
7-6 Sædís Rún Heiðarsdóttir ('93, víti)
Byrjunarlið:
83. Erin Katrina Mcleod (m)
3. Arna Dís Arnþórsdóttir
4. Eyrún Embla Hjartardóttir
5. Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir (f)
9. Andrea Mist Pálsdóttir
10. Anna María Baldursdóttir (f)
14. Snædís María Jörundsdóttir ('68)
16. Sædís Rún Heiðarsdóttir
18. Jasmín Erla Ingadóttir
21. Heiða Ragney Viðarsdóttir
23. Gyða Kristín Gunnarsdóttir ('68)

Varamenn:
12. Auður Sveinbjörnsdóttir Scheving (m)
2. Sóley Guðmundsdóttir
13. Ólína Ágústa Valdimarsdóttir ('68)
15. Alma Mathiesen ('68)
31. Jóhanna Melkorka Þórsdóttir
77. Eyrún Vala Harðardóttir

Liðstjórn:
Kristján Guðmundsson (Þ)
Andri Freyr Hafsteinsson
Rajko Stanisic
Hilmar Þór Hilmarsson
Hulda Björk Brynjarsdóttir

Gul spjöld:

Rauð spjöld:
@gummi_aa Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
94. mín Leik lokið!
Stjarnan er Lengjubikarmeistari kvenna 2023
Viðtöl koma inn á síðuna á eftir.


Eyða Breyta
93. mín Mark - víti Sædís Rún Heiðarsdóttir (Stjarnan)
HÚN TRYGGIR STJÖRNUNNI SIGURINN!

Eyða Breyta
93. mín Mark - víti Hulda Björg Hannesdóttir (Þór/KA)
Öruggt. Sædís Rún tekur fimmtu spyrnu Stjörnunnar og getur tryggt sínu liði sigur.
Eyða Breyta
93. mín Mark - víti Alma Mathiesen (Stjarnan)
Auðvelt!
Eyða Breyta
93. mín Mark - víti Tahnai Lauren Annis (Þór/KA)
Heldur Þór/KA inn í þessu!
Eyða Breyta
93. mín Mark - víti Andrea Mist Pálsdóttir (Stjarnan)
Pollróleg og skorar af öryggi. Harpa hefur ekki verið nálægt því að verja víti.
Eyða Breyta
93. mín Misnotað víti Hulda Ósk Jónsdóttir (Þór/KA)
Það var allt mjög undarlegt í kringum þetta víti, virkaði mjög stressuð og setti boltann yfir markið.
Eyða Breyta
93. mín Mark - víti Heiða Ragney Viðarsdóttir (Stjarnan)
Var ekkert að hika og skoraði af öryggi.
Eyða Breyta
93. mín Mark - víti Sandra María Jessen (Þór/KA)
Fyrirliðinn skorar!
Eyða Breyta
93. mín Mark - víti Jasmín Erla Ingadóttir (Stjarnan)
Eins öruggt og það gerist.
Eyða Breyta
93. mín Mark - víti Jakobína Hjörvarsdóttir (Þór/KA)
Erin í rétt horn en spyrnan var alveg út við stöng hjá miðverðinum.
Eyða Breyta
93. mín
Við erum að fara í vítaspyrnukeppni!
Það kom ekkert sigurmark og því erum við á leið í vító. Þetta verður spennandi!

Stjarnan er með reynslu af vítakeppni en þær unnu Þrótt í undanúrslitunum eftir eina slíka. Hvað gerist núna?
Eyða Breyta
91. mín
Stjarnan heldur áfram að herja á Akureyringana. Fáum við sigurmark?
Eyða Breyta
90. mín
Þrjár mínútur í uppbótartíma
Eyða Breyta
89. mín
Það eru 223 áhorfendur á Samsungvellinum í dag.
Eyða Breyta
88. mín
Einstefna
Gunnhildur Yrsa reynir skot að marki en varnarveggur Þórs/KA nær að blokka það. Þetta er algjör einstefna!
Eyða Breyta
86. mín Gult spjald: Steingerður Snorradóttir (Þór/KA)

Eyða Breyta
85. mín
Heiða Ragney nær skallanum eftir hornspyrnuna en setur boltann fram hjá. Það er aftur komin grenjandi rigning í Garðabæ.
Eyða Breyta
85. mín
Stjörnukonur liggja á Þór/KA. Alma í mjög hættulegri stöðu en Hulda Björg nær að bjarga. Stjarnan fær svo horn.
Eyða Breyta
84. mín
Arna Dís í góðri stöðu með fullt af Stjörnukonum í teignum en finnur enga þeirra.
Eyða Breyta
83. mín
Alma reynir sendingu fyrir en boltinn fer aftur fyrir endamörk. Stjarnan líklegri til að setja sigurmarkið.
Eyða Breyta
82. mín Krista Dís Kristinsdóttir (Þór/KA) Karen María Sigurgeirsdóttir (Þór/KA)

Eyða Breyta
82. mín Kolfinna Eik Elínardóttir (Þór/KA) Ísfold Marý Sigtryggsdóttir (Þór/KA)

Eyða Breyta
79. mín
Þessi leikur hefur heldur betur verið góð auglýsing fyrir Bestu deild kvenna sem hefst síðar í þessum mánuði. Sú deild verður mjög áhugaverð í sumar.


Eyða Breyta
78. mín
Ef þetta endar svona þá förum við beint í vítaspyrnukeppni.
Eyða Breyta
78. mín
Stúkan tekur við sér, heimakonur hvattar áfram í leit að sigurmarkinu.
Eyða Breyta
77. mín
Ólína Ágústa kláraði færi sitt frábærlega


Eyða Breyta
76. mín MARK! Ólína Ágústa Valdimarsdóttir (Stjarnan), Stoðsending: Alma Mathiesen
MARK!!!!!
Það eru varamennirnir sem eiga þetta mark. Alma með sendinguna fyrir og Ólína er rosalega svöl í færinu. Klárar þetta frábærlega.

Stjarnan jafnar metin aftur og þetta verður spennandi - þessi síðasti stundarfjórðungur.
Eyða Breyta
72. mín
Fínasta skottilraun
Varamaðurinn Alma Mathiesen með boltann fyrir utan teig og íhugar lengi hvort hún eigi að taka skotið eða ekki. Hún lætur svo vaða og er skotið rétt yfir markið. Mjög fín tilraun.


Eyða Breyta
69. mín
Jasmín meira miðsvæðis núna og hún byrjar á því að þræða Andreu Mist í gegn, en hún reynir skot úr mjög erfiðri stöðu. Fer fram hjá markinu.
Eyða Breyta
68. mín Alma Mathiesen (Stjarnan) Gyða Kristín Gunnarsdóttir (Stjarnan)

Eyða Breyta
68. mín Ólína Ágústa Valdimarsdóttir (Stjarnan) Snædís María Jörundsdóttir (Stjarnan)

Eyða Breyta
66. mín
Liðsfundir á vellinum
Andrea Mist fær högg og það þarf að hlúa að henni. Á meðan nýta bæði lið tækifærið og taka liðsfundi á vellinum.
Eyða Breyta
63. mín
Hulda Ósk gerði annað mark Þórs/KA

Eyða Breyta
63. mín
Þór/KA að hóta öðru marki. Sandra María með skalla fram hjá markinu.
Eyða Breyta
62. mín MARK! Hulda Ósk Jónsdóttir (Þór/KA)
MARK!!!!
Þór/KA skorar gegn gangi leiksins og tekur forystuna. Þær eru varla búnar að fara yfir miðju í seinni hálfleiknum en skora núna sitt annað mark í leiknum.

Hulda Ósk fær boltann fyrir utan teig og lætur vaða. Hann er lengi í loftinu en Erin nær ekki að komast til hans. Hann endar í netinu og gestirnir eru núna yfir.

Stjörnukonur eru búnar að stjórna ferðinni í seinni hálfleik en það telur ekki ef þú kemur boltanum í markið.
Eyða Breyta
62. mín
Núna er byrjað að hellirigna.
Eyða Breyta
61. mín
Stjarnan með öll tök á leiknum
Gyða Kristín aftur með skot í varnarmann. Sædís kemst í kjölfarið í skotfæri en Harpa ver.

Heimakonur eru að færast nær.


Eyða Breyta
60. mín
Mjög vel spilað hjá Stjörnunni en Snædís er aðeins of lengi á boltanum. Gyða fær svo boltann en á skot sem fer í varnarmann.
Eyða Breyta
58. mín
Arna Dís í skotfæri!
Bakvörðurinn fær boltann inn á teignum en hittir hann ekki nægilega vel og skóflar honum einhvern veginn yfir markið.
Eyða Breyta
55. mín
Sandra María fellur í teignum og gestirnir vilja fá vítaspyrnu en ég held að það hafi verið lítið í þessu.
Eyða Breyta
55. mín
Þór/KA með grjótharða stuðningskonu í stúkunni sem reynir að keyra sitt lið í gang.
Eyða Breyta
54. mín
Sædís með hornspyrnu sem fer í gegnum allan pakkann. Þetta var hættulegt!
Eyða Breyta
54. mín
Stjarnan að byrja seinni hálfleikinn betur.

Eyða Breyta
53. mín
Jasmín leggur boltann út á Sædísi sem kemur á ferðinni. Hún á skot en það fer beint í varnarmann.
Eyða Breyta
49. mín
Jasmín með geggjaða sendingu á Gyðu en hún nær ekki nægilega góðu skoti og Harpa handsamar boltann.


Eyða Breyta
46. mín
Seinni hálfleikurinn er farinn af stað
Hvort liðið mun standa uppi sem sigurvegari í Lengjubikar kvenna?
Eyða Breyta
45. mín Hulda Björg Hannesdóttir (Þór/KA) Amalía Árnadóttir (Þór/KA)

Eyða Breyta
45. mín Hálfleikur
Liðin eru að mæta aftur út á völl og við förum senn að byrja aftur.
Eyða Breyta
45. mín Hálfleikur
Fyrri hálfleikurinn að baki. Stjarnan heilt yfir verið sterkari aðilinn en Þór/KA hefur átt sínar rispur. Verður afar fróðlegur seinni hálfleikur hér í Garðabænum.


Eyða Breyta
44. mín
Útlit fyrir að staðan verði jöfn í hálfleikshléinu.
Eyða Breyta
41. mín
Arna Dís vinnur boltann og á hættulegan bolta fyrir, en Harpa kemur út og grípur hann.
Eyða Breyta
39. mín
Það liggur svolítið á Þór/KA núna. Gott spil hjá Stjörnunni og Sædís á hættulega sendingu fyrir en hún fann ekki samherja.
Eyða Breyta
36. mín
Dauðafæri!
Stuttu eftir jöfnunarmarkið var Gunnhildur komin í dauðafæri en Harpa gerði vel í því að verja frá henni.
Eyða Breyta
35. mín
Annað markið sem Snædís gerir í Lengjubikarnum

Eyða Breyta
34. mín MARK! Snædís María Jörundsdóttir (Stjarnan)
MARK!!!!
Snædís er agresív í fremstu víglínu, vinnur boltann af Jakobínu og setur boltann fram hjá Hörpu í markinu.

Afskaplega vel gert hjá Snædísi sem gafst ekki upp eftir að hún missti af boltanum og vann hann strax aftur. Kláraði svo vel.

Staðan jöfn aftur.
Eyða Breyta
33. mín
Erin handsamar boltann eftir hornspyrnuna og sparkar honum út á vinstri kantinn.
Eyða Breyta
33. mín
Þór/KA fær aukaspyrnu með ágætis fyrirgjafarmöguleika. Boltinn fyrir og Erin rétt nær að kýla hann í burtu. Gestirnir fá horn.


Eyða Breyta
28. mín
Vanda og Jörundur líka í stúkunni
Það er ekki aðeins landsliðsþjálfarinn sem er í stúkunni því þar eru líka Vanda Sigurgeirsdóttir, formaður KSÍ, og Jörundur Áki Sveinsson, sem er yfirmaður fótboltamála hjá sambandinu. Þórður Þórðarson, þjálfari U23 landsliðsins, er líka mættur.

Dóttir Jörundar - Snædís María - er í byrjunarliði Stjörnunnar.


Eyða Breyta
27. mín
Darraðadans inn á teignum
Flott spil hjá Stjörnunni og það skapast smá darraðadans inn á teignum, en Harpa nær að handsama boltann.
Eyða Breyta
25. mín
Sandra María í Lengjubikarnum í ár
Leikir: 7
Mörk: 12


Eyða Breyta
24. mín
Í byrjun leiks skrifaði ég í 'aðstæður' dálkinn að það væri loksins farið að vora en ég tek það til baka. Það er núna mjög grátt yfir og rosalega kuldalegt.
Eyða Breyta
22. mín
Þór/KA fær hornspyrnu og Tahnai á skalla að marki en Gunnhildur kemur boltanum í burtu.
Eyða Breyta
19. mín
Mjög góð sókn hjá Stjörnunni. Heiða Ragney finnur Gunnhildur sem á svo flotta sendingu á bak við vörnina á Jasmín. Svo á Jasmín sendingu fyrir en Jakobína versta vel og kemur boltanum frá.
Eyða Breyta
18. mín
Sædís með tvær ömurlegar hornspyrnur í röð og Þór/KA geysist upp í skyndisókn. Þær fá í kjölfarið innkast á vallarhelmingi Stjörnunnar.
Eyða Breyta
17. mín
Stjarnan í álitlegri sókn. Gyða Kristín í fyrirgjafastöðu og vinnur hornspyrnu.
Eyða Breyta
15. mín
Sandra María heldur áfram að raða inn mörkum á undirbúningstímabilinu

Eyða Breyta
14. mín MARK! Sandra María Jessen (Þór/KA), Stoðsending: Tahnai Lauren Annis
MARK!!!!
Þór/KA vinnur boltann hátt á vellinum. Thanai á frábæra sendingu inn á landsliðskonuna, en hún hittir boltann ekki almennilega.

Samt rúllar boltann einhvern veginn fram hjá Erin og í netið. Það var enginn kraftur í þessu en hann rúllaði inn.

Þór/KA tekur forystuna.
Eyða Breyta
13. mín
Stjarnan fær svo aðra hornspyrnu en gestunum tekst að koma boltanum í burtu.
Eyða Breyta
13. mín
Gunnhildur með fasta sendingu út á Jasmín en Ísfold verst vel í teignum. Stjarnan fær hoprnspyrnu.
Eyða Breyta
9. mín
Stjarnan byrjaði betur en Þór/KA hefur verið að vinna sig meira og meira inn í leikinn.
Eyða Breyta
8. mín
Slæm sending út úr vörn Stjörnunnar og Karen María reynir skot fyrir utan teig, en það var aldrei líklegt. Hefði líklega getað gert betur úr þessari stöðu.
Eyða Breyta
7. mín
Þór/KA stillir upp í 4-4-2
Harpa

Ísfold Marý - Dominique - Jakobína - Steingerður

Hulda Ósk - Kimberley Dóra - Tahnai - Sandra María

Amalía - Karen María
Eyða Breyta
6. mín
Tahnai með skot að marki en það er laust og fer fram hjá markinu.
Eyða Breyta
3. mín
Hætta!
Jasmín með flotta sendingu fyrir en Snædís María nær ekki að setja tána í boltann. Svo á Arna Dís skot sem fer í varnarmann.


Eyða Breyta
2. mín
Stjarnan stillir upp í 4-2-3-1
Erin

Arna Dís - Anna María - Eyrún Embla - Sædís Rún

Andrea Mist - Heiða Ragney

Gyða Kristín - Gunnhildur Yrsa - Jasmín

Snædís María
Eyða Breyta
1. mín Leikur hafinn
Þá förum við af stað. Þór/KA byrjar með boltann og sækir í átt að Hagkaup í Garðabæ.
Eyða Breyta
Fyrir leik
Erin, markvörður Stjörnunnar, er ekki að spila í markmannsbúningi. Hún er þess í stað að leika í vindstakki...
Eyða Breyta
Fyrir leik
Upphitun er lokið. Leikmenn farnir inn í klefa og eftir um það bil tíu mínútur mun Helgi Mikael Jónasson flauta til leiks í þessum úrslitaleik.
Eyða Breyta
Fyrir leik
Landsliðsþjálfarinn í stúkunni
Þorsteinn Halldórsson, landsliðsþjálfari kvenna, er mættur í stúkuna og mun fylgjast með leiknum.


Eyða Breyta
Fyrir leik
Markvarðarstaðan hjá Garðbæingum
Eitt það athyglisverðasta við lið Stjörnunnar í sumar er hver verður aðalmarkvörður. Landsliðsmarkvörðurinn Auður Scvheving var fengin frá Val áður en Ólympíumeistarinn Erin McLeod kom svo til félagsins. Erin er eiginkona Gunnhildar Yrsu.

Erin byrjar í dag og Auður er á bekknum. Þetta er ákveðinn hausverkur fyrir Kristján, þjálfara Stjörnunnar.


Eyða Breyta
Fyrir leik
Byrjunarlið Þórs/KA
1. Harpa Jóhannsdóttir (m)
2. Dominique Jaylin Randle
5. Steingerður Snorradóttir
6. Tahnai Lauren Annis
7. Amalía Árnadóttir
9. Karen María Sigurgeirsdóttir
10. Sandra María Jessen (f)
16. Jakobína Hjörvarsdóttir
22. Hulda Ósk Jónsdóttir
26. Ísfold Marý Sigtryggsdóttir
27. Kimberley Dóra Hjálmarsdóttir
Eyða Breyta
Fyrir leik
Byrjunarlið Stjörnunnar
1. Erin Katrina Mcleod (m)
3. Arna Dís Arnþórsdóttir
5. Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir
10. Anna María Baldursdóttir (f)
14. Snædís María Jörundsdóttir
16. Sædís Rún Heiðarsdóttir
18. Jasmín Erla Ingadóttir
19. Andrea Mist Pálsdóttir
21. Heiða Ragney Viðarsdóttir
23. Gyða Kristín Gunnarsdóttir
30. Eyrún Embla Hjartardóttir
Eyða Breyta
Fyrir leik
Frítt á leikinn
Það er frítt inn á leikinn í Garðabænum og ég mæli eindregið með því að skella sér á völlinn. Fyrir þá sem komast ekki þá verður auðvitað vel fjallað um leikinn í þessari textalýsingu.
Eyða Breyta
Fyrir leik
Fyrir nokkru síðan ræddi ég við Gunnhildi Yrsu um heimkomuna í Stjörnuna. Það er óhætt að mæla með því spjalli fyrir þennan leik.


Eyða Breyta
Fyrir leik
Ótímabær spá
Heimavöllurinn gaf á dögunum út ótímabæra spá fyrir Bestu deild kvenna. Þar var Stjörnunni spáð Íslandsmeistaratitlinum.

1. Stjarnan
2. Valur
3. Breiðablik
4. Þróttur R.
5. Selfoss
6. Þór/KA
7. ÍBV
8. Keflavík
9. FH
10. Tindastóll


Eyða Breyta
Fyrir leik
Komnar/farnar hjá Þór/KA
Þór/KA hafnaði í sjöunda sæti á síðustu leiktíð. Jóhann Kristinn Gunnarsson tók aftur við liðinu og hafa verið gerðar nokkrar breytingar á leikmannahópnum.

Komnar
Dominique Randle
Karen María Sigurgeirsdóttir á láni frá Breiðabliki
Tahnai Annis

Farnar
Andrea Mist Pálsdóttir í Stjörnuna
Arna Eiríksdóttir í Val (var á láni)
Margrét Árnadóttir til Parma
María Catharina Ólafsdóttir Gros til Fortuna Sittard
Sara Mjöll Jóhannsdóttir í HK
Tiffany McCarty


Karen María Sigurgeirsdóttir
Eyða Breyta
Fyrir leik
Komnar/farnar hjá Stjörnunni
Stjarnan endaði í öðru sæti í Bestu deildinni síðasta sumar. Síðan þá hafa verið gerðar nokkrar breytingar á liðinu.

Komnar
Auður Sveinbjörnsdóttir Scheving frá Val
Andrea Mist Pálsdóttir frá Þór/KA
Erin McLeod frá Orlando Pride
Eyrún Vala Harðardóttir frá Breiðabliki (var á láni hjá Aftureldingu)
Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir frá Orlando Pride
María Sól Jakobsdóttir frá HK (var á láni)
Katrín Ósk Sveinbjörnsdóttir frá Sindra (var á láni)
Klara Mist Karlsdóttir frá HK (var á láni)
Ólína Ágústa Valdimarsdóttir frá KR (var á láni)
Snædís María Jörundsdóttir frá Keflavík (var á láni)
Sylvía Birgisdóttir frá Haukum (var á láni)

Farnar
Alexa Kirton í Fram
Chante Sandiford hætt
Hildigunnur Ýr Benediktsdóttir í FH
Katrín Ásbjörnsdóttir í Breiðablik
Rakel Lóa Brynjarsdóttir í Gróttu (var á láni hjá HK)

Stærst er það náttúrulega að landsliðskonan Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir er mætt heim.


Eyða Breyta
Fyrir leik
Sandra María vann sér inn sæti í landsliðinu
Sandra María Jessen hefur verið stórkostleg með Þór/KA í Lengjubikarnum og skorað ellefu mörk. Hún vann sér inn sæti í A-landsliðinu á dögunum og fer með því í verkefni núna síðar í þessum mánuði.


Eyða Breyta
Fyrir leik
Leið Þórs/KA í úrslitaleikinn
Þór/KA endaði líkt og Stjarnan í öðru sæti í riðli sínum.

A deild kvenna riðill 1
1. Þróttur R. - 15 stig
2. Þór/KA - 12 stig
3. Valur - 9 stig
4. Selfoss - 6 stig
5. FH - 3 stig
6. KR - 0 stig

Þór/KA 6 - 1 FH
KR 1 - 3 Þór/KA
Þór/KA 4 - 3 Valur
Þróttur R. 3 - 1 Þór/KA
Þór/KA 7 - 2 Selfoss

Þór/KA gerði svo gríðarlega vel í undanúrslitunum þar sem þær unnu sigur gegn Breiðabliki á Kópavogsvelli, 1-2. Tahnai Lauren Annis skoraði þar tvennu.


Eyða Breyta
Fyrir leik
Leið Stjörnunnar í úrslitaleikinn
Stjarnan endaði í öðru sæti í riðli sínum.

A deild kvenna riðill 2
1. Breiðablik - 13 stig
2. Stjarnan - 13 stig
3. Tindastóll - 9 stig
4. ÍBV - 6 stig
5. Keflavík - 3 stig
6. Afturelding 0 stig

Stjarnan 6 - 0 Tindastóll
Afturelding 1 - 2 Stjarnan
Stjarnan 2 - 0 Keflavík
Stjarnan 1 - 1 Breiðablik
Stjarnan 3 - 1 ÍBV

Stjarnan spilaði svo við Þrótt í undanúrslitunum og vann leik eftir vítaspyrnukeppni. Jasmín Erla Ingadóttir er markahæsti leikmaður Stjörnunnar í Lengjubikarnum með fjögur mörk.


Eyða Breyta
Fyrir leik
Fyrsti bikar tímabilsins í húfi
Sumarið er að koma, fótboltinn er að byrja. Í dag er fyrsti alvöru bikar tímabilsins í kvennaboltanum í húfi þegar Stjarnan og Þór/KA eigast við á Samsungvellinum.


Eyða Breyta
Byrjunarlið:
1. Harpa Jóhannsdóttir (m)
3. Dominique Jaylin Randle
5. Steingerður Snorradóttir
6. Tahnai Lauren Annis
7. Amalía Árnadóttir ('45)
8. Kimberley Dóra Hjálmarsdóttir
9. Karen María Sigurgeirsdóttir ('82)
10. Sandra María Jessen (f)
16. Jakobína Hjörvarsdóttir
22. Hulda Ósk Jónsdóttir
26. Ísfold Marý Sigtryggsdóttir ('82)

Varamenn:
2. Kolfinna Eik Elínardóttir ('82)
11. Una Móeiður Hlynsdóttir
13. Sonja Björg Sigurðardóttir
17. Emelía Ósk Kruger
21. Krista Dís Kristinsdóttir ('82)
24. Hulda Björg Hannesdóttir ('45)

Liðstjórn:
Jóhann Kristinn Gunnarsson (Þ)
Haraldur Ingólfsson
Pétur Heiðar Kristjánsson
Angela Mary Helgadóttir
Karlotta Björk Andradóttir

Gul spjöld:
Steingerður Snorradóttir ('86)

Rauð spjöld: