Kaplakrikavöllur
mánudagur 08. maí 2023  kl. 19:15
Besta-deild karla
Aðstæður: Pínu blautt eftir góða rigningu en logn og 10° svo lítur völlurinn ekkert frábærlega út
Dómari: Vilhjálmur Alvar Þórarinsson
Áhorfendur: 798
Maður leiksins: Úlfur Ágúst Björnsson (FH)
FH 2 - 1 Keflavík
1-0 Úlfur Ágúst Björnsson ('39)
2-0 Kjartan Henry Finnbogason ('52)
2-1 Viktor Andri Hafþórsson ('85)
Myndir: Fótbolti.net - J.L.
Byrjunarlið:
1. Sindri Kristinn Ólafsson (m)
4. Ólafur Guðmundsson
6. Eggert Gunnþór Jónsson (f)
9. Kjartan Henry Finnbogason ('76)
11. Davíð Snær Jóhannsson ('66)
16. Hörður Ingi Gunnarsson ('80)
18. Kjartan Kári Halldórsson ('80)
26. Dani Hatakka
29. Vuk Oskar Dimitrijevic
33. Úlfur Ágúst Björnsson
34. Logi Hrafn Róbertsson

Varamenn:
24. Daði Freyr Arnarsson (m)
2. Ástbjörn Þórðarson ('80)
3. Haraldur Einar Ásgrímsson
5. Gyrðir Hrafn Guðbrandsson
7. Steven Lennon ('76)
8. Finnur Orri Margeirsson ('66)
27. Jóhann Ægir Arnarsson ('80)

Liðstjórn:
Heimir Guðjónsson (Þ)
Ólafur H Guðmundsson
Axel Guðmundsson
Fjalar Þorgeirsson
Sigurvin Ólafsson (Þ)
Bjarki Reyr Jóhannesson
Benjamin Gordon Mackenzie

Gul spjöld:
Davíð Snær Jóhannsson ('55)
Úlfur Ágúst Björnsson ('74)
Jóhann Ægir Arnarsson ('82)
Steven Lennon ('83)

Rauð spjöld:
@haraldur_orn Haraldur Örn Haraldsson
96. mín Leik lokið!
FH tekur þennan sigur og verða ánægðir með það sérstaklega þar sem þetta var farið að verða pínu stressandi fyrir heimamenn í endan.

Skýrsla og viðtöl koma seinna í kvöld.
Eyða Breyta
94. mín Gult spjald: Edon Osmani (Keflavík)
FHingar alveg brjálaðir og vilja aukaspyrnu en Vilhjálmur dæmir bara innkast. Verður svo smá kítingur þar sem Osmani prjónar greinilega aðeins yfir sig.
Eyða Breyta
91. mín
Uppbótartíminn eru heilar 6 mínútur.
Eyða Breyta
89. mín
Gott langt innkast frá FH skapar smá hættu en Lennon tekur skotið sem fer framhjá.
Eyða Breyta
85. mín MARK! Viktor Andri Hafþórsson (Keflavík)
Nýkominn inná og minnkar muninn!!
Keflavík tekur aukspyrnu frá miðlínu inn í teig þar sem verður til smá darraðardans og boltinn dettur fyrir Viktor á vítapunktinum þar sem hann hamrar boltanum í þaknetið með sinni fyrstu snertingu í leiknum!
Eyða Breyta
85. mín Guðjón Pétur Stefánsson (Keflavík) Ernir Bjarnason (Keflavík)

Eyða Breyta
85. mín Viktor Andri Hafþórsson (Keflavík) Marley Blair (Keflavík)

Eyða Breyta
83. mín Gult spjald: Steven Lennon (FH)
Ljótt brot og Keflvíkingar vildu sjá annan lit. Lennon tekur skæristæklingu á Erni.
Eyða Breyta
82. mín Gult spjald: Jóhann Ægir Arnarsson (FH)

Eyða Breyta
80. mín Jóhann Ægir Arnarsson (FH) Hörður Ingi Gunnarsson (FH)
Hörður verður að fara útaf.
Eyða Breyta
80. mín Ástbjörn Þórðarson (FH) Kjartan Kári Halldórsson (FH)

Eyða Breyta
79. mín
Hörður liggur enn og það virðist vera öxlin frekar en rifbeinin. Hann virkar alveg sárþjáður.
Eyða Breyta
78. mín
Hörður Ingi þarfnast aðhlynningar, heldur um rifbeinin.
Eyða Breyta
76. mín Steven Lennon (FH) Kjartan Henry Finnbogason (FH)
Kjartani er klappað vel
Eyða Breyta
75. mín Jóhann Þór Arnarsson (Keflavík) Daníel Gylfason (Keflavík)

Eyða Breyta
74. mín Gult spjald: Úlfur Ágúst Björnsson (FH)

Eyða Breyta
72. mín
Eggert nær skalla úr horninu en beint á Rosenörn.
Eyða Breyta
72. mín
Vuk með virkilega flott hlaup upp vinstri kantinn og vinnur horn
Eyða Breyta
69. mín Gult spjald: Gunnlaugur Fannar Guðmundsson (Keflavík)

Eyða Breyta
66. mín Finnur Orri Margeirsson (FH) Davíð Snær Jóhannsson (FH)

Eyða Breyta
63. mín
Alvöru stemning í stúkunni og FHingar taka víkingaklappið
Eyða Breyta
62. mín Gult spjald: Ernir Bjarnason (Keflavík)
FH ætlar að taka aukaspyrnu hratt og þá tekur Logi boltan af Erni. Ernir pirrast eithtvað við það og ýtir í bakið á honum.
Eyða Breyta
57. mín
Marley Blair nálægt því að minnka muninn
Keflavík setur langan bolta fram þar sem Marley Blair er fljótastur en það er lokað vel á hann þannig hann kemst ekki alveg einn á móti markmanni.

Blair gerir hinsvegar mjög vel og nær einhvervegin að setja boltan fyrir markið þannig að boltinn gæti rúllað inn en Eggert bjargar á línu
Eyða Breyta
56. mín
Marley Blair tekur aukaspyrnu í fínu skotfæri fyrir Keflavík en skotið hans fer yfir markið.
Eyða Breyta
55. mín Gult spjald: Davíð Snær Jóhannsson (FH)

Eyða Breyta
52. mín MARK! Kjartan Henry Finnbogason (FH)
Þvílíka chippan!
Edon Osmani ætlar að senda boltan til baka á markmann frá miðlínu en hittir engan vegin boltan þannig að þessi sending breytist í frábæra stungusendingu á Kjartan!

Rosenörn kemur þá út úr markinu til að mæta Kjartan en Kjartan tekur chippar boltanum bara yfir Rosenörn. Alvöru afgreiðsla!!
Eyða Breyta
51. mín
Logi Hrafn tekur skot lengst fyrir utan teig. Það er fast en fer örugglega framhjá.
Eyða Breyta
47. mín
Bæði Kjartan Henry og Eggert liggja núna eftir samstuð og heimamenn pirraðir að fá ekkert dæmt. Kjartan stendur upp en Eggert þarf aðhlynningu en virðist ætla halda leik áfram.
Eyða Breyta
46. mín Edon Osmani (Keflavík) Sindri Þór Guðmundsson (Keflavík)

Eyða Breyta
46. mín
Seinni hálfleikurinn er farinn af stað!

Eyða Breyta
45. mín Hálfleikur
FH leiðir í hálfleik nokkuð verðskuldað en bæði lið hefðu hæglega getað skorað fleiri mörk. Vonumst eftir betri færanýtingu í seinni hálfleikur.
Eyða Breyta
45. mín Gult spjald: Jordan Smylie (Keflavík)
+1
Eyða Breyta
45. mín
Einni mínútu bætt við
Eyða Breyta
43. mín
Skrítin fyrirgjöf frá Daníel Gylfa nær einhvernegin að enda hjá Jordan Smylie sem tekur slakt skot úr góðu færi beint á Sindra.
Eyða Breyta
39. mín MARK! Úlfur Ágúst Björnsson (FH), Stoðsending: Vuk Oskar Dimitrijevic
Frábært spil hjá FH
Úlfur setur virkilega flotta hælsendingu í gegn fyrir Vuk upp hægri kantinn. Úlfur tekur svo hlaupið inn í teig þar sem Vuk finnut hann í lappir. Úlfur klárar svo mjög vel.

Frábær tenging þarna á milli!
Eyða Breyta
33. mín
Dauðafæri hjá Kjartani Henry!
Úlfur setur góðan bolta í gegn þar sem Kjartan gerir mjög vel í að halda sér réttstæðum. Hann er þá sloppinn einn gegn markmanni og á gott skot en Rosenörn ver virkilega vel í stöng og nær svo að handsama boltan.
Eyða Breyta
30. mín
Skrýtin fyrirgjöf frá Nacho endar eiginlega að verða skot sem Sindri þarf að eiga sig allan við að blaka boltanum útaf í horn.

Ekkert kom úr horninu.
Eyða Breyta
24. mín
Vuk klúðrar einn á móti markmanni
Boltinn kemur fram eftir hornspyrnu frá Keflavík og Sindri Þór kiksar boltanum þannig að Vuk er sloppinn einn í gegn.

Hann þarf samt að hlaupa frá miðlínu og þegar hann kemur að vítateignum nær Rosenörn að loka vel þannig að Vuk skýtur í hann.
Eyða Breyta
22. mín
Smiley hársbreidd frá því að skora!
Stungusendingin kemur í gegn og Hatakka er gjörsamlega sofandi og leyfir boltanum að fara framhjá sér. Smiley hleypur þá með boltan í átt að markinu og tekur þrumuskort sem er meistaralega varið af Sindra.
Eyða Breyta
18. mín
Lítið um færi síðustu mínúturnar. Hörður Ingi kom með langt innkast sem var skallað aftur til hans, svo kom fyrirgjöfin sem endaði í markspyrnu.
Eyða Breyta
10. mín
FH heldur áfram að sækja og í þetta skipti kemur boltinn inn í teig frá Ólafi á vinstri kantinum. Þá fær Kjartan Henry boltan í miðjum teignum en skotið er varið.
Eyða Breyta
9. mín
Hörður setur góðan bolta inn í teig og Úlfur tekur boltan niður. Hann er í góðu færi en er of lengi að athafna sig þannig að Keflavík stelur boltanum af honum
Eyða Breyta
8. mín
Uppstilling Keflavíkur
Rosenörn
Oleksii - Magnús - Gunnlaugur - Nacho
Sindri Snær - Ernir - Daníel
Sindri Þór - Smiley - Blair
Eyða Breyta
4. mín
FH vill fá víti
Kjartan Kári prjónar sig upp hægri kantinn og á svo skot sem fer í varnarmann. Heimamenn eru alveg brjálaðir og vilja fá hendi víti en Vilhjálmur gefur til kynna að hann hafi verið með hendina við síðuna og því ekki brotlegt.
Eyða Breyta
3. mín
Uppstilling FH
Sindri
Hörður - Eggert - Hatakka - Ólafur
Kjartan Kári - Logi - Davíð -Vuk
Úlfur - Kjartan Henry
Eyða Breyta
2. mín
Logi Hrafn vinnur boltan af Keflvíkingum og brunar af stað og mundar skotfótinn. Skotið hans fer af varnarmanni og ratar til Kjartans sem á svo líka skoti í varnarmann.

Kröftug byrjun hjá heimamönnum.
Eyða Breyta
1. mín Leikur hafinn
Vilhjámur flautar leikinn af stað!
Eyða Breyta
Fyrir leik
Byrjunarliðin eru komin!
Heimir Guðjónsson leikmaður FH gerir 2 breytingar á liði sínu. Björn Daníel meiddist í síðasta leik og er því ekki með, á meðan Finnur Orri Margeirsson fær sér sæti á bekknum. Kjartan Henry Finnbogason og Logi Hrafn Róbertsson koma inn fyrir þá.

Sigurður Ragnar Eyjólfsson þjálfari Keflavíkur gerir heilar 4 breytingar á sínu liði þar sem Magnús Þór Magnússon, Daníel Gylfason, Ernir Bjarnason og Oleksii Kovtun koma allir inn í byrjunarliðið á kostnað Dags Inga Valsson, Guðjóni Pétri Stefánssonar, Sami Kamel og Frans Elvarssonar.
Kjartan Henry er í byrjunarliðinu
Eyða Breyta
Fyrir leik

Eyða Breyta
Fyrir leik
Dómari leiksins
Vilhjálmur Alvar Þórarinsson verður dómari þessa leiks og honum til aðstoðar verða Jóhann Gunnar Guðmundsson og Eysteinn Hrafnkelsson.

Eftirlitsmaður er Sigurður Hannesson og varadómari er Gunnar Freyr Róbertsson

Eyða Breyta
Fyrir leik
Keflvíkingar hafa átt erfitt með markaskorun
Keflavík mætir í Hafnarfjörðinn í kvöld með 4 stig í 9. sæti deildarinnar. Þeir hafa ekki skorað mikið af mörkum en þeir eru með 4 mörk í fyrstu 5 leikjum tímabilsins. Þá hafa þeir fengið 10 mörk á sig.

Leikir Keflavíkur í deildinni hingað til:

Fylkir 1-2 Keflavík
Keflavík 0-2 KR
KA 0-0 Keflavík
Keflavík 1-3 ÍBV
Víkingur 4-1 Keflavík

Sigurður Ragnar Eyjólfsson þjálfari Keflavíkur
Eyða Breyta
Fyrir leik
Fyrsti leikurinn á Kaplakrika
FH hefur spilað síðustu heimaleiki sína á Miðvelli en þetta verður fyrsti leikur þeirra á aðalheimavelli sínum í Kaplakrika. FH hefur náð í báða sína sigra á heimavelli og vonast þeir væntanlega eftir að þeir geta haldið uppteknum hætti á Kaplakrikavelli.

Hópurinn hjá FH er aðeins þunnskipaður þar sem nokkrir leikmenn hafa verið að glíma við meiðsli. jóst er að Björn Daníel Sverrisson verður ekki með FH eftir að hafa meiðst í tapi gegn KA á Akureyri í síðustu umferð. Þá eru Logi Hrafn, Kjartan Henry og Eggert Gunnþór tæpir.

Leikir FH í deildinni hingað til:

Fram 2-2 FH
FH 1-0 Stjarnan
Fylkir 4-2 FH
FH 3-0 KR
KA 4-2 FH
Björn Daníel Sverrisson
Eyða Breyta
Fyrir leik
Komiði sæl og verið velkomin í beina textalýsingu frá viðureign FH og Keflavíkur í Bestu deild karla.

Leikurinn verður spilaður á Kaplakrikavelli og hefst klukkan 19:15
Eyða Breyta
Fyrir leik
Textalýsingar kvöldsins
20:15 Fylkir - Breiðablik
19:15 FH - Keflavík
19:15 Fram - Stjarnan
18:00 ÍBV- Víkingur
Eyða Breyta
Elvar Geir Magnússon
Byrjunarlið:
13. Mathias Rosenörn (m)
4. Nacho Heras
5. Magnús Þór Magnússon (f)
6. Sindri Snær Magnússon
9. Daníel Gylfason ('75)
16. Sindri Þór Guðmundsson ('46)
17. Gunnlaugur Fannar Guðmundsson
18. Ernir Bjarnason ('85)
50. Oleksii Kovtun
86. Marley Blair ('85)
89. Jordan Smylie

Varamenn:
12. Rúnar Gissurarson (m)
3. Axel Ingi Jóhannesson
7. Viktor Andri Hafþórsson ('85)
14. Guðjón Pétur Stefánsson ('85)
19. Edon Osmani ('46)
28. Gabríel Máni Sævarsson
38. Jóhann Þór Arnarsson ('75)

Liðstjórn:
Ómar Jóhannsson
Haraldur Freyr Guðmundsson
Þórólfur Þorsteinsson
Gunnar Örn Ástráðsson
Sigurður Ragnar Eyjólfsson (Þ)
Stefán Bjarki Sturluson
Guðmundur Árni Þórðarson

Gul spjöld:
Jordan Smylie ('45)
Ernir Bjarnason ('62)
Gunnlaugur Fannar Guðmundsson ('69)
Edon Osmani ('94)

Rauð spjöld: