Framvöllur
mánudagur 08. maí 2023  kl. 19:15
Besta-deild karla
Aðstæður: 13 gráður, rigning á köflum. Gervigrasið brilliant.
Dómari: Pétur Guðmundsson
Áhorfendur: 834
Maður leiksins: Aron Jóhannsson
Fram 2 - 1 Stjarnan
1-0 Orri Sigurjónsson ('28)
2-0 Aron Jóhannsson ('59)
2-1 Guðmundur Baldvin Nökkvason ('83)
Byrjunarlið:
1. Ólafur Íshólm Ólafsson (m)
0. Guðmundur Magnússon ('75)
4. Orri Sigurjónsson
6. Tryggvi Snær Geirsson ('67)
7. Aron Jóhannsson
10. Fred Saraiva
11. Magnús Þórðarson ('83)
17. Adam Örn Arnarson
23. Már Ægisson
28. Tiago Fernandes ('83)
69. Brynjar Gauti Guðjónsson

Varamenn:
12. Benjamín Jónsson (m)
5. Delphin Tshiembe
8. Albert Hafsteinsson ('67)
9. Þórir Guðjónsson ('75)
14. Hlynur Atli Magnússon ('83)
15. Breki Baldursson
22. Óskar Jónsson ('83)

Liðstjórn:
Jón Sveinsson (Þ)
Daði Lárusson
Magnús Þorsteinsson
Þórhallur Víkingsson
Einar Haraldsson
Ragnar Sigurðsson
Ingi Rafn Róbertsson

Gul spjöld:
Brynjar Gauti Guðjónsson ('25)

Rauð spjöld:
@mattimatt Matthías Freyr Matthíasson
90. mín Leik lokið!
Annar sigur Fram í röð
Leiknum er lokið með sigri Fram sem vinnur sinn annan leik í röð. Verður sigurinn að teljast sanngjarn þegar á heildina er litið.

Umfjöllun og viðtöl koma innan skamms.
Eyða Breyta
90. mín Gult spjald: Ágúst Þór Gylfason (Stjarnan)

Eyða Breyta
90. mín Gult spjald: Guðmundur Baldvin Nökkvason (Stjarnan)

Eyða Breyta
90. mín
VAR ÞETTA HENDI?!
Stjörnumenn ekki sáttir og vildu fá vítaspyrnu. Mér sýndist boltinn fara í hendina aá leikmanni Fram inn í teig.
Eyða Breyta
90. mín
Fjórum mínútum bætt við
Að minnsta kosti.
Eyða Breyta
90. mín
Fram er aðeins að leika sér að eldinum og Stjörnumenn eru að ganga á lagið, en er það of seint?
Eyða Breyta
87. mín Gult spjald: Björn Berg Bryde (Stjarnan)

Eyða Breyta
86. mín
Enn tekst Fram ekki að halda hreinu í sumar.
Eyða Breyta
83. mín Óskar Jónsson (Fram) Tiago Fernandes (Fram)

Eyða Breyta
83. mín Hlynur Atli Magnússon (Fram) Magnús Þórðarson (Fram)

Eyða Breyta
83. mín MARK! Guðmundur Baldvin Nökkvason (Stjarnan), Stoðsending: Ísak Andri Sigurgeirsson
Á STJARNAN SÉNS?!
Ísak Andri með sendingu á Guðmund Baldvin sem er ný kominn inn á, inn í teig Fram og Guðmundur Baldvin setur boltan í fjærhornið fram hjá Ólafi Íshólm.

Er þetta of lítið, of seint?
Eyða Breyta
81. mín
ÓLAFUR ÍSHÓLM!
Ólafur Íshólm varði dauða dauða dauða færi sem Ísak Andri fékk, frábær varsla!
Eyða Breyta
80. mín
Fram fær bara allan tíma í heiminum á vallarhelmingi Stjörnunnar. Með skynsamlegra spili og færslum hefði þetta átt að enda með marki.
Eyða Breyta
79. mín Kjartan Már Kjartansson (Stjarnan) Adolf Daði Birgisson (Stjarnan)

Eyða Breyta
79. mín Guðmundur Baldvin Nökkvason (Stjarnan) Heiðar Ægisson (Stjarnan)

Eyða Breyta
75. mín Þórir Guðjónsson (Fram) Guðmundur Magnússon (Fram)

Eyða Breyta
75. mín
Frábær varnaleikur hjá Brynjari Gauta. Hann og Ísak Andri voru komnir í kapphlaup um boltann inn í teig Fram, Brynjar renndi sér í veg fyrir Ísak Andra og tók boltann. Virkilega vel gert.
Eyða Breyta
70. mín
Ég kannski þarf að borða hatt minn (ef ég ætti slíkann) en ég sé ekki með nokkru móti að Stjörnumenn muni fá eitthvað út úr þessum leik.
Eyða Breyta
67. mín Albert Hafsteinsson (Fram) Tryggvi Snær Geirsson (Fram)

Eyða Breyta
63. mín
Stjörnumenn virka hugmyndasnauðir og ná ekki að skapa sér eitt eða neitt með boltann.
Eyða Breyta
60. mín Baldur Logi Guðlaugsson (Stjarnan) Guðmundur Kristjánsson (Stjarnan)

Eyða Breyta
59. mín MARK! Aron Jóhannsson (Fram), Stoðsending: Fred Saraiva
LITLA MARKIÐ!
Fred sendir boltann á Aron sem tók boltann í fyrstu snertingu af tuttugu metrunum og neglir boltanum neðarlega í vinstra hornið.

Óverjandi fyrir Árna Snæ.
Eyða Breyta
51. mín
Spilamennska Fram í þessum leik er búin að vera á tíðum bara hreint frábær. Enda fá þeir nægt rými frá Stjörnumönnum til að spila boltanum á milli sín og í raun dóla sér með boltann.

En ef þeir fara ekki að nýta sér þessa stöðu betur að þá get ég alveg séð Stjörnumenn setja mark í grímuna á þeim.
Eyða Breyta
50. mín
Illa farið með gott færi!
Fram með frábært spil upp völlinn sem skilaði sér í því að Tiago komst í mjög álitlegt færi inn í teignum en hittir boltann illa og skotið geigar.
Eyða Breyta
46. mín
Seinni er hafinn!
Engin breyting hjá hvorugu liðinu en vonandi verður meira fjör í seinni hálfleiknum en þeim fyrri. Við viljum fá fleiri mörk í þetta allavegana.
Eyða Breyta
45. mín Hálfleikur
Hálfleikur í Úlfársárdalnum. Fram er einu marki yfir og það verður að segjast að sé sanngjarnt.

Fáum okkur kaffi og með´í og sjáum hvað seinni hálfleikur ber með sér eftir c.a. 15 mín.
Eyða Breyta
45. mín
Tveimur mínútum bætt við að minnsta kosti.
Eyða Breyta
43. mín
Tryggvi Snær með skot að marki Stjörnunnar, rétt yfir markið. Góð tilraun. En fram að skotinu voru Frammarar búnir að vera með boltann í nokkursskonar reitarbolta sín á milli í alveg góðar tvær til þrjár mínútur án þess að Stjörnumenn væru eitthvað að pressa á þá.
Eyða Breyta
41. mín
Fram eru að verjast sóknaráhlaupum Stjörnunnar vel. Virðast vera með öll tök á leiknum en maður hefur á tilfinningunni að það þurfi ekkert mikið til að það komi annað mark í þennan leik og það gæti dottið öðru hvoru megin.
Eyða Breyta
36. mín
Það hefur lifnað yfir Stjörnumönnum eftir að þeir lentu undir. En það vantar einhvern herslumun.
Eyða Breyta
31. mín
ORRI BJARGAR Á LÍNU
Orri Sigurjóns, markaskorarinn bjargar á línu eftir skot frá Sindra Þór þegar Stjarnan fékk hornspyrnu. Öflugar mínútur hjá Orra!
Eyða Breyta
28. mín MARK! Orri Sigurjónsson (Fram), Stoðsending: Fred Saraiva
MAAAARKKKKK
Það kom að því!

Fram með sína fimmtu hornspyrnu í leiknum, Fred tók góða spyrnu inn í teiginn, þar mætti Orri Sigurjóns og flikkaði boltanum í markið.

Lélegur varnarleikur hjá Stjörnunni en vel gert hjá Orra.
Eyða Breyta
26. mín
Úfff!

Frábær aukspyrna sem Jóhann Árni tók, boltinn sveif inn í teig Fram og þar var Ísak Andri mættur og náði að pota höfðinu í boltann en hitti hann ekki nógu vel.
Eyða Breyta
25. mín Gult spjald: Brynjar Gauti Guðjónsson (Fram)

Eyða Breyta
24. mín
Fyrsta skot Stjörnunar á markið
Heiðar Ægisson með gott skot á mark Fram fyrir töluvert fyrir utan teig eftir að boltinn barst til hans eftir hornspyrnu. Skotið var gott og fast, alls ekki vitlaus tilraun en Ólafur Íshólm gerði vel.
Eyða Breyta
18. mín
Stjarnan ekki átt skot á markið
Stjörnumenn þurfa aðeins að stíga upp ætli þeir sér að fá eitthvað út úr þessum leik. Þeir hafa ekki átt skot á markið enn sem komið er og er Fram með öll völd á leiknum.
Eyða Breyta
16. mín
Vel varið hjá Árna Snæ!

Flott sókn Fram sem skilaði sér í skoti frá Fred við vítateigslínuna, skotið var fast en eins og áður segir varði Árni mjög vel.
Eyða Breyta
10. mín
Fred með skot af c.a. 25 metrunum beint á markið. Árni Snæt átti ekki í vandræðum með að verja það.
Eyða Breyta
9. mín
Stjarnan hefur varla komist upp fyrir miðlínuna síðustu mínútur. Mómentið er með Fram eins og er.
Eyða Breyta
7. mín
Hættulegur skalli eftir hornspyrnu sem Fram fékk. Brynjar Gauti hoppaði hæstur í teignum og náði góðum skalla sem Árni Snær greip vel.
Eyða Breyta
5. mín
Fram búnir að pressa vel á Stjörnuna síðustu tvær mínútur. Brynjar Gauti fékk svo högg frá Gumma Kristjáns og lá eftir og leikurinn stöðvaðist. En Brynjar er staðinn upp og virðist allt í lagi með hann.
Eyða Breyta
1. mín Leikur hafinn
Þetta er farið af stað!

Stjarnan byrjar með boltann og spila í átt að Grafarvoginum eða svona í þá átt circa.
Eyða Breyta
Fyrir leik

Eyða Breyta
Fyrir leik
Byrjunarliðin eru komin inn
Fram vann ÍBV 3 - 1 í síðustu umferð. Jón Þórir Sveinsson þjálfari Fram gerir tvær breytingar á liði sínu. Brynjar Gauti Guðjónsson er kominn aftur inn í liðið eftir meiðsli og sest Hlynur Atli á bekkinn. Svo fer Albert Hafsteinsson á bekkinn í stað Tryggva Snæ Geirsson.

Stjarnan tapaði 0 - 2 fyrir Breiðabliki í síðustu umferð. Ágúst Gylfason gerir eina breytingingu á liði sínu. Hilmar Árni Halldórsson byrjar í stað Kjartans Má Kjartanssonar sem sest á bekkinn.
Eyða Breyta
Fyrir leik
Dómaratríóið
Pétur Guðmundsson er sá sem heldur um flautuna í kvöld.
Bryngeir Valdimarsson er AD1

Guðmundur Ingi Bjarnason er AD2

Eyða Breyta
Fyrir leik

Eyða Breyta
Fyrir leik
Jafnteflisárið 2022
Liðin mættust tvisvar sinnum á síðasta tímabili og gerðu jafntefli í báðum leikjum.

1 - 1 fór fyrri leikur liðanna þann 7. maí í fyrra í Garðabænum þar sem Emil Atlason skoraði mark Stjörnunnar og Guðmundur Magnússon mark Fram.

Er liðin mættust svo þann 3. ágúst í Úlfársárdalnum fóru leikar 2 - 2 þar sem Tiago skoraði bæði mörk Fram og Emil Atlason og Guðmundur Baldvin Nökkvason skoruðu mörk Stjörnunnar.
Eyða Breyta
Fyrir leik
Spáir sigri Stjörnunnar
Ásta Eir Árnadóttir, fyrirliði kvennaliðs Breiðabliks, spáir í leiki umferðarinnar fyrir Fótbolta.net. Hún spáir því að Stjarnan vinni í kvöld.

Fram 3 - 1 Stjarnan
Stjarnan klárar þennan leik, þægilegur 0-3 sigur og Gummi Elite setur 2 mörk og verður sterkastur í þessari umferð.
Eyða Breyta
Fyrir leik
Stjarnan
Stjarnan er í 11. sæti deildarinnar með 3.stig. 1 sigur og 4 töp og hafa þeir skorað 7 mörk en fengið á sig 12.

Það hefur verið áhyggjuefni þeirra hversu mikið af mörkum þeir hafa fengið á sig og þurfa nauðsynlega á sigri að halda í dag.
Eyða Breyta
Fyrir leik
Fram
Fram situr í 8.sæti deildarinnar með 5 stig. Einn sigur, 2 jafntefli og 2 töp. Þeir hafa skorað 11 mörk og fengið á sig 12. Leikir þeirra eru yfirleitt gríðarlega fjörugir og mikið af mörkum. Vonandi verður svo um að vera í kvöld.
Eyða Breyta
Fyrir leik
Ísak Andri Sigurgeirsson er markahæstur Stjörnumanna með þrjú mörk.

Eyða Breyta
Fyrir leik
Guðmundur Magnússon er markahæstur Frammara og annar markahæsti maður deildarinnar í sumar með 4 mörk. En hann einmitt skoraði í 3 - 1 sigri Fram á ÍBV í síðustu umferð.

Eyða Breyta
Fyrir leik
Velkomin í Úlfársárdal!
Komið sæl og blessuð lesendur góðir og velkomin í beina textalýsingu frá leik í 6. umferð Bestu deildar karla í knattspyrnu þar sem gestgjafarnir í Fram fá Garðbæingana í Stjörnunni í heimsókn. Leikurinn hefst kl. 19:15

Textalýsingar kvöldsins:
20:15 Fylkir - Breiðablik
19:15 FH - Keflavík
19:15 Fram - Stjarnan
18:00 ÍBV- Víkingur
Eyða Breyta
Byrjunarlið:
12. Árni Snær Ólafsson (m)
2. Heiðar Ægisson ('79)
5. Guðmundur Kristjánsson (f) ('60)
6. Sindri Þór Ingimarsson
7. Ísak Andri Sigurgeirsson
8. Jóhann Árni Gunnarsson
10. Hilmar Árni Halldórsson
19. Eggert Aron Guðmundsson
24. Björn Berg Bryde
29. Adolf Daði Birgisson ('79)
32. Örvar Logi Örvarsson

Varamenn:
33. Viktor Reynir Oddgeirsson (m)
9. Daníel Laxdal
18. Guðmundur Baldvin Nökkvason ('79)
20. Sigurbergur Áki Jörundsson
28. Baldur Logi Guðlaugsson ('60)
30. Kjartan Már Kjartansson ('79)
80. Róbert Frosti Þorkelsson

Liðstjórn:
Davíð Sævarsson
Þórarinn Ingi Valdimarsson
Rajko Stanisic
Ágúst Þór Gylfason (Þ)
Jökull I Elísabetarson (Þ)
Þór Sigurðsson
Egill Atlason

Gul spjöld:
Björn Berg Bryde ('87)
Guðmundur Baldvin Nökkvason ('90)
Ágúst Þór Gylfason ('90)

Rauð spjöld: