Fotbolti.net
Magnús Már Einarsson
Magnús Már Einarsson
Pepsi-deild karla 2017
Alvogenvöllurinn
Völlurinn flottur. Smá vindur og sól inn á milli
KR
KR
2 - 1
ÍA
ÍA
Hafþór Pétursson (sjm) 9'1 - 0Óskar Örn Hauksson 56'2 - 02 - 185' Garðar Bergmann Gunnlaugsson (víti)
Dómari: Helgi Mikael Jónasson
Áhorfendur: 1209
Myndir: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

SKÝRSLAN: KR-ingar komnir á skrið

Hvað réði úrslitum?

KR var einfaldlega sterkari aðilinn í leiknum. Síðan skemmir ekki fyrir að hafa leikmann eins og Óskar Örn Hauksson í liðinu. Hann getur búið til mark upp úr engu eins og hann gerði í kvöld.

Bestu leikmenn

1. Óskar Örn Hauksson

Skoraði frábært mark og var ógnandi allan leikinn.

2. Morten Beck

Skilaði fínni frammistöðu sem hægri vængbakvörður. Ógnaði talsvert sóknarlega, sér í lagi í síðari hálfleik.

Atvikið

Skagamenn fengu umdeilda vítaspyrnu undir lokin og minnkuðu muninn. Fram að því höfðu þeir lítið ógnað sóknarlega. Markið gaf ÍA kraft og áhorfendur fengu spennandi lokamínútur eftir að KR virtist ætla að sigla öruggum sigri í höfn.

Hvað þýða úrslitin?

KR-ingar eru búnir að vinna tvo leiki í röð eftir óvænt tap á heimavelli í fyrstu umferð. ÍA er án stiga eftir þrjá leiki. Skagamenn hafa líka byrjað illa undanfarin tvö tímabil. Ná þeir að rífa sig aftur upp í ár?

Vondur dagur

Miðvörðurinn ungi Hafþór Pétursson varð fyrri því óláni að skora sjálfsmark í fyrri hálfleik. Rauk út úr vörninni í síðara markinu og lét Óskar Örn labba framhjá sér þar.

Dómarinn - 5.5

Hinn efnilegi Helgi Mikael hafði fín tök á leiknum lengst af. Vítaspyrnudómurinn var umdeildur og að mínu mati rangur. Stefán Logi náði að kýla boltann áður en hann og Albert skella saman.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.