SKÝRSLAN: KA kom sér í toppsætið í bili
Hvað réði úrslitum?
Vinnsla og grimmd KA manna framan af leik var meiri en gestanna. Mjög sterkur varnarleikur af þeirra hálfu
Bestu leikmenn
1. Aleksandar Trninic
Var mjög sterkur á miðjunni og þurfti svo að færa sig í miðvörðinn þegar Darko meiddist. Frábærar tæklingar og fjölmörg skallaeinvígi sem hann vann.
2. Hallgrímur Mar Steingrímsson
Var allt í öllu í fyrri hálfleik sérstaklega. Mikil vinnsla og stórhættulegar fyrirgjafir. Lagði upp seinna markið á Emil Lyng.
Atvikið
Þegar Elfar Árni kom KA í 1-0. KA menn voru mun rólegri á boltanum eftir að þeir komust í forystu og klisjan mörk breyta leikjum á hér vel við.
Hvað þýða úrslitin?
Í bili er KA komið í toppsætið. Eru með 7 stig af 9 mögulegum og geta unað sáttir við sitt. Fjölnir er um miðja deild og fengu á sig sínu fyrstu mörk í sumar í dag.
Vondur dagur
Fyrir Darko Bulatovic sem meiddist í fyrri hálfleik. Hefur verið frábær hjá KA í sumar og vonandi mun þetta ekki reynast alvarlegt. Svo er vissulega alltaf vont að tapa en fannst enginn leikmaður Fjölnis eiga afleitan leik.
Dómarinn - 5
Leyfði leiknum að fljóta vel. Sleppti þó vítaspyrnu að mér fannst og kippti sér lítið upp við brotið á Darko sem virkaði ljótt.



