SKÝRSLAN: \"0-0 leikur\" endaði með 1-0 sigri Eyjamanna
Hvað réði úrslitum?
Vinnusemi og góð vörn ÍBV skilaði þremum stigum í hús. Víkingar sóttu vel og mikið með vindinum en tókst ekki að finna greiða leið að markinu.
Bestu leikmenn
1. Sindri Snær Magnússon
Bar fyrirliðabandið hjá Eyjamönnum í dag. Vinnusemi og áræðni til fyrirmyndar. Fagnaði manna mest í leikslok.
2. Sigurður Grétar Benónýsson
Átti stærstan þátt í markinu. Gaf varnarmönnum Víkinga engan frið. Virkilega duglegur leikmaður og frábær viðbót við hóp ÍBV liðsins.
Atvikið
Þegar Devon Már Griffin og Geoffrey Castillion lentu harkalega saman rétt fyrir lok fyrri hálfleiks. Devon yfirgaf völlinn á börum og var mættur á hækjur eftir leik. Geoffrey snéri heldur ekki aftur inn á völlinn í byrjun seinni hálfleiks. Virkilega óhugnalegt og vonandi að þeir komist út á völl sem allra fyrst.
Hvað þýða úrslitin?
ÍBV vinna sinn fyrsta leik í sumar. Víkingar í ákveðinni brekku eftir 2 tapleiki í röð gegn liðum sem spáð er neðarlega.
Vondur dagur
Leikmannahópur og allt teymi Víkinga fær þetta. Ef þeir ætla sér að berjast um topp/Evrópusæti þurfa þeir að gera betur.
Ívar Örn Jónsson átti heldur ekki sinn besta dag og var tekinn af velli í hálfleik. Milos talaði um að hann hefði verið sjóveikur á leiðinni til Vestmannaeyja en sagði þó að það væri engin afsökun.
Einnig vert að minnast á Devon Má og Geoffrey sem hefðu viljað spila allar 90 mínúturnar í kvöld.

Dómarinn - 6.5
Hélt ákveðinni línu út leikinn, sem margir voru þó ósáttir með. Sparsamur á spjöld og einstaka furðulegir dómar.