Fotbolti.net
Bjarni Þórarinn Hallfreðsson
Bjarni Þórarinn Hallfreðsson
Pepsi-deild karla 2017
Grindavíkurvöllur
Völlurinn fínn en töluvert rok
Grindavík
Grindavík
1 - 3
Víkingur Ó.
Víkingur Ó.
0 - 146' Guðmundur Steinn Hafsteinsson 0 - 251' Kenan Turudija 0 - 381' Þorsteinn Már Ragnarsson82' Kwame QueeJuan Manuel Ortiz Jimenez 90'1 - 3
Dómari: Ívar Orri Kristjánsson
Myndir: Fótbolti.net - Benóný Þórhallsson

SKÝRSLAN: Víkingur Ó. komst á blað í grindvíska rokinu

Hvað réði úrslitum?

Kröftug byrjun Víkings Ó. í seinni hálfleik. Leikurinn var í járnum í fyrri hálfleik og Grindavík jafnvel örlítið betri. En Víkingur Ó. komu af miklum krafti inn í seinni hálfleikinn og eftir sex mínútur af hálfleiknum var staðan orðin 2-0.

Bestu leikmenn

1. Alonso Sanchez

Heilt yfir var vörn Víkings flott í leiknum. Alonso lék sem djúpur miðjumaður og var virkilega góður. Þá voru hornspyrnunar hans stórhættulegar og skilaði það tveimur mörkum í upphafi seinni halfleiks, sem gerðu nánast útum leikinn.

2. Guðmundur Steinn Hafsteinsson

Fyrirliði liðsins og spilaði sem leiðtogi í dag. Var mikilvægur í sókn og vörn og kom Víkingi á bragðið í kvöld. Guðmundur olli miklum ursla í vörn Grindavíkur og þá var hann mikilvægur varnarlega í föstum leikatriðum Grindvíkinga.

Atvikið

Í raun tvö atvik í dag. Pape slapp einn í gegnum vörn Grindavíkur og Jón Ingason braut á Pape rétt fyrir utan vítateig og réttilega dæmd aukaspyrna. Víkingur vildi fá rautt spjald á Jón en hann fékk gult. Hefði auðveldlega verið hægt að reka Jón útaf þarna.

Hitt atvikið er rauða spjaldið á Kwame Quee. Þetta var hans fyrsti leikur á Íslandi en hann gekk til liðs við Víking í vikunni. Rauða spjaldið var svolítið soft eins og Ejub sagði í viðtali eftir leikinn. Vissulega braut Kwame nokkrum sinnum af sér í leiknum en ekkert brotið réttlætti rautt spjald. Kannski var Ívar bara búinn að fá nóg.

Hvað þýða úrslitin?

Úrslitin þýða einfaldlega það að Víkingur Ólafsvík er komið á blað í sumar. Þetta var fyrsti sigur Víkings í sumar og eru þeir komnir með þrjú mikilvæg stig.

Heimavöllur Grindavíkur reyndist þeim vel í fyrra í Inkasso deildinni og var þetta fyrsta tap Grindavíkur á heimavelli síðan 5. september 2015!

Vondur dagur

Auðvelt er að segja Grindavíkurliðið í heild sinni í dag. Hins vegar voru nokkrir leikmenn liðsins sem voru afburðarslakir. Fimm manna varnarlína Grindavíkur var vægast sagt léleg. Bakverðirnir Hákon Ívar og Gunnar voru líklega manna slakastir í dag. Þeir hafa verið flottir í sumar en þetta var ekki þeirra dagur. Brynjar Ásgeir, Björn Bryde og Jón Ingason áttu líka slakan leik. Þá hafa Alexander Veigar og Andri Rúnar átt töluvert betri leiki en þeir sýndu í kvöld.

Dómarinn - 5

Ívar var svolítið duglegur á flautunni sem varð til þess að leikurinn stöðvaðist töluvert og þá missti hann sig í gulu spjöldunum á tímabili í seinni hálfleik. Veit ekki með þetta rauða spjald á Kwame og þá hefði hann getað rekið Jón Ingason útaf. Hefur dæmt betri leiki en hann hafði þó ekki áhrif á úrslit leiksins sem er alltaf plús.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.