SKÝRSLAN: Þróttur Vogum í bílstjórasætinu um sæti í 2.deild
Hvað réði úrslitum?
Leikurinn í dag var jafn og skemmtilegur á að horfa. Þróttur Vogum komu mun sterkari til leiks í seinni hálfleik og héldu betur boltanum heldur en í þeim fyrri. Þróttur Vogum voru einfaldlega með meiri gæði frammá við í seinnihálfleik og er það sem ræður úrslitum í dag.
Bestu leikmenn
1. Marteinn Pétur Urbancic
Skoraði tvö góð mörk og var sífellt ógnandi frammá við.
2. Admir Kubat
Var mjög traustur í vörn Þróttar.
Atvikið
Þegar Vængir Júpíters klikka á Vítaspyrnu undir lok leiks. Hjörleifur klúðraði sínu fyrsta víti í sumar og var það afar dýrkeypt þar sem mark á þessum tímapunkti hefði sett mikla spennu í leikinn.
Hvað þýða úrslitin?
Úrslitin þýða það að Þróttur Vogum er komið í lykilstöðu til þess að krækja í annað sætið og þar með tryggja sér upp í 2.deild að ári. Hinsvegar eru Vængir Júpíters og KFG ennþá í séns en þau þurfa að treysta á það að Þróttur misstígi sig á móti Reyni Sandgerði í næstu umferð.
Dómarinn - 6
Dómarinn hefur sennilega átt betri dag. Leikurinn var heldur erfiður að dæma þar sem það var hart barist og spennustigið hjá leikmönnum var mjög hátt.



