SKÝRSLAN: Vonin lifir á Skaganum
Hvað réði úrslitum?
Barátta og vilji Skagamanna til að vinna þennan leik. Voru tilbúnari í baráttuna og héldu áfram allan leikinn. Ungu strákarnir stóðu sig virkilega vel.
Bestu leikmenn
1. Arnór Snær Guðmundsson(ÍA)
Var algjörlega eins og klettur í þessum leik. Grimmur í alla skallabolta og stjórnaði vörn ÍA eins og herforingi.
2. Stefán Teitur Þórðarson(ÍA)
Barðist allan leikinn og lét það ekki buga sig þó hann hafi klúðrað dauðafæri í fyrri hálfleik. Bætti upp fyrir það í seinni hálfleik og kom ÍA yfir í leiknum.
Atvikið
Vítaklúðrið hjá Þórði og rauða spjaldið á Callum. Höfðu ekki úrslitaáhrif í leiknum en það fór um marga Skagamenn þegar Þórður lét verja vítið frá sér. Og rauða spjaldið hjá Callum var alveg glórulaust.
Hvað þýða úrslitin?
Skagamenn halda í þá veiku von að halda sér í deildinni með þessum sigri. KA-menn fjarlægast Evrópubaráttu og nálgast frekar hinn endann. Geta hæglega dregist í fallbaráttu í loka leikjunum.
Vondur dagur
Þetta skrifast algjörlega á Srdjan Rajkovic! Var geggjaður í fyrri hálfeik og varði m.a. víti en það var ekki það sama uppá teningnum í seinni hálfleik. Bæði mörkin skrifast á hann. Í báðum tilfellum missti hann skot frá sér og sóknarmenn ÍA hirtu frákastið og skoruðu.
Dómarinn - 8
Átti bara fínan leik að mínu mati. Stórar ákvarðanir allar spot on.



