Fotbolti.net
Elvar Geir Magnússon
Elvar Geir Magnússon
Pepsi-deild karla
Víkingsvöllur
Ekta gluggaveður.
Víkingur R.
Víkingur R.
2 - 2
Stjarnan
Stjarnan
0 - 112' Hólmbert Aron Friðjónsson Milos Ozegovic 34'1 - 1Arnþór Ingi Kristinsson 47'2 - 12 - 295' Ævar Ingi Jóhannesson
Dómari: Gunnar Jarl / Sigurður Óli
Myndir: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

SKÝRSLAN: Allir svekktir í Fossvogi

Hvað réði úrslitum?

Þegar allt er sett saman eru úrslitin sanngjörn. Það virtist ekki ætla að ganga upp hjá Stjörnunni að skapa almennileg færi en jöfnunarmarkið kom eins og þruma úr heiðskíru.

Bestu leikmenn

1. Jóhann Laxdal - Stjarnan

Er að finna sig vel í vængbakvarðahlutverkinu.

2. Arnþór Ingi Kristinsson - Víkingur R.

Drjúgur.

Atvikið

Þegar Víkingar komust í 2-1 var Haraldur Björnsson gríðarlega reiður út í Gunnar Jarl dómara. Halli missti boltann en Túfa fór í hann og líklega um brot að ræða. Markið breytti leiknum algjörlega. Víkingar komust yfir, féllu rosalega aftarlega og voru þéttir í vörninni.

Hvað þýða úrslitin?

Bæði lið sár og svekkt í leikslok. Veikar vonir Stjörnunnar um að skáka Valsmönnum urðu að engu. Víkingar voru með unninn leik í höndunum sem þeir töpuðu niður. Þegar mótið verður gert upp held ég samt að Víkingar muni virða stigið.

Vondur dagur

Stjörnumenn hljóta að rýna vel í þennan leik og hversu ótrúlega hugmyndasnauðir þeir voru stærstan hluta leiksins. Þeim gekk ekkert að skapa og kom í raun á óvart að þeir hafi náð þessu jöfnunarmarki miðað við hversu ævintýralega illa gekk að finna glufur á varnarmúr Víkinga.

Dómarinn - 6,5

Dómgæslan var mjög fín í kvöld en risastórt vafaatriði þegar Víkingar komast yfir. Gunnari til varnar var mjög erfitt að sjá atvikið og allir í fréttamannastúkunni töldu að ekki hafi verið brot.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.