Fotbolti.net
Magnús Már Einarsson
Magnús Már Einarsson
Pepsi-deild karla
Kaplakrikavöllur
Vindur á annað markið. Völlurinn flottur
FH
FH
1 - 0
Grindavík
Grindavík
Steven Lennon 19'1 - 0
Dómari: Ívar Orri Kristjánsson
Myndir: Fótbolti.net - J.L.

SKÝRSLAN: Fyrsti sigur FH í rúman mánuð

Hvað réði úrslitum?

Færanýtingin. Grindvíkingar höfðu brennt af góðum færum áður en Steven Lennon skoraði með þrumuskoti eftir flotta sókn. Eftir það náðu FH-ingar að vera þéttari í vörninni og sigla mikilvægum sigri í höfn.

Bestu leikmenn

1. Gunnar Nielsen (FH)

Færeyingurinn var öryggið uppmálað í öllum sínum aðgerðum og átti góðar vörslur. Kemur öflugur heim úr landsliðsverkefni með Færeyjum.

2. Steven Lennon (FH)

Skoraði markið mikilvæga og ógnaði mest af sóknarmönnum FH í leiknum.

Atvikið

Sigurmarkið hjá Lennon. Grindvíkingar höfðu verið ógnandi en FH-ingar vöknuðu betur til lífsins eftir markið. Lennon afgreiddi færið líka fagmannlega. Hans tólfta mark í Pepsi-deildinni í sumar.

Hvað þýða úrslitin?

FH hoppaði upp í 3. sætið með sigrinum. Liðið er tveimur stigum á undan KR og þremur á undan Grindavík sem er í 5. sæti. Þrjú stig eru í Stjörnuna í 2. sæti en FH á leik til góða á öll þessi lið.

Vondur dagur

Will Daniels var mjög duglegur á kantinum hjá Grindavík í leiknum. Hann kom sér í nokkur góð færi í fyrri hálfleiknum en afgreiðslurnar voru mjög slakar. Eitthvað sem hann getur verið mjög ósáttur með.

Dómarinn - 6

Engir stórir dómar rangir hjá Ívari en nokkrir minni dómar sem vöktu furðu.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.