Fotbolti.net
Ester Ósk Árnadóttir
Ester Ósk Árnadóttir
Pepsi-deild karla
Akureyrarvöllur
Frábært veður. Sól og 17 stiga hiti, smá gola til að kæla leikmenn
KA
KA
4 - 1
Víkingur R.
Víkingur R.
Archange Nkumu 32'1 - 0Ásgeir Sigurgeirsson 37'2 - 0Hallgrímur Jónasson 54'3 - 03 - 167' Alex Freyr Hilmarsson Hallgrímur Mar Steingrímsson 78'4 - 1
Dómari: Egill Arnar Sigurþórsson
Áhorfendur: 944
Myndir: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

SKÝRSLAN: Markaregn á Akureyri í blíðunni

Hvað réði úrslitum?

Krafturinn og viljinn í KA liðinu. Bæði liðin byrjuðu þennan leik af krafti en það var meiri kraftur í KA liðinu. Þrjú mörk koma eftir föst leikatriði sem varnarlína Víkings R. hefði geta varist töluvert betur.

Bestu leikmenn

1. Hallgrímur Mar Steingrímsson

Frábær leikur hjá Hallgrími Mar. Hann á tvær flottar stoðsendingar, beint á kollinn á Archie og svo á kollinn á Hallgrím Jónassyni. Til að kóróna flottann leik, skorar hann gott mark. Hann var rosalega duglegur allan leikinn, vinnusamur og ógnandi. KA er alltaf í góðum málum þegar Hallgrímur er í stuði.

2. Archange Nkumu

Erfitt val hér þar sem KA liðið stóð sig heilt yfir mjög vel en Archie var frábær á miðjunni, skorar líka laglegt skallamark. Ótrúlega sterkur leikmaður sem er erfitt að ná boltanum af.

Atvikið

Mark númer 2 hjá KA setur þá í lykilstöðu fyrir seinni hálfleikinn. Leikurinn hafði verið fremur jafn fram að því og bæði lið líkleg.

Hvað þýða úrslitin?

KA menn lyfta sér upp í 7. sæti og bætast við flóruna þar, létta á sér pressunni. Víkingur R. hins vegar í 11 sæti og hefur ekki unnið leik síðan í 1. umferðinni.

Vondur dagur

Varnarlína Víkings R.
Þeir áttu í miklu basli með sóknarmenn KA. Liðið fær sömuleiðis á sig þrjú mörk úr föstum leikatriðum sem er bara ekki boðlegt.

Dómarinn - 8

Egill Arnar hafði fínustu tök á leiknum. Það var mikill barátta í báðum liðum, mikið um brot og hiti í mönnum en hann stóð sig fanta vel.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.