SKÝRSLAN: Gulli skúrkurinn í 6 stiga leik á Kópavogsvelli
Hvað réði úrslitum?
Mistök Gulla. Missir boltann frá sér og brýtur síðan á Þorsteini, ótrúlega klaufalegt hjá þessum reynslumikla markmanni og þetta kostaði leikinn.
Bestu leikmenn
1. Baldur Sigurðsson
Mikil barátta í Baldri að venju og Stjarnan voru yfir á miðjunni í þessum leik, gaf ekki tommu eftir í þessum leik.
2. Þorsteinn Már Ragnarsson
Þorsteinn var líflegur á kantinum, átti fína spretti oft á köflum og náði boltanum af Gulla og fékk réttilega víti sem vann leikinn fyrir Stjörnuna.
Atvikið
Mistökin hjá Gulla, sjaldséð hjá honum og kosta leikinn.
Hvað þýða úrslitin?
Breiðablik eru enn á toppnum með 11 stig en missa toppsætið af öllum líkindum annað kvöld. Þeir hafa ekki unnið í 4 leikjum í röð og þurfa að stíga upp. Eftir hörmungar byrjun og aðeins 2 sigra núna eru Stjarnan samt komnir í toppbaráttuna með 10 stig, rosalega mikilvæg 3 stig.
Vondur dagur
Gunnleifur Gunnleifsson.
Gulli sýndi í fyrri hálfleik hversu góður markmaður hann er þegar hann varði stórkostlega en hann kostar leikinn með skelfilegum mistökum í seinni hálfleik. Gulli er frábær markmaður og á eftir að bæta upp fyrir þetta í sumar.
Gulli sýndi í fyrri hálfleik hversu góður markmaður hann er þegar hann varði stórkostlega en hann kostar leikinn með skelfilegum mistökum í seinni hálfleik. Gulli er frábær markmaður og á eftir að bæta upp fyrir þetta í sumar.
Dómarinn - 5
Var frekar slakur í dag, vítið auðvitað hárrétt en var að dæma á mjög soft brot og var mjög spjaldaglaður.



