Fotbolti.net
Ísak Máni Wíum
Ísak Máni Wíum
Inkasso deildin - 1. deild karla
Framvöllur
Geggjaðar! Sólin skín og smá gola
Fram
Fram
0 - 1
ÍA
ÍA
0 - 149' Þórður Þorsteinn Þórðarson Guðmundur Magnússon (misnotað víti) 68'
Dómari: Elías Ingi Árnason
Áhorfendur: 325
Myndir: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

SKÝRSLAN: Enn einn 1-0 sigur Skagamanna

Hvað réði úrslitum?

Leikurinn var ekkert rosalega skemmtilegur á að horfa og lítið um færi. Munurinn á liðunum hér í dag var einfaldlega sá að ÍA nýttu færin sín en ekki Fram.

Bestu leikmenn

1. Bjarki Steinn Bjarkason (ÍA)

Kom inní liðið fyrir leikinn og svaraði kallinu vel. Bauð upp á áætlunarferðir upp vinstri kantinn og lagði upp mark ÍA.

2. Árni Snær Ólafsson (ÍA)

Enn eitt hreina lakið hjá Árna í sumar, var öruggur í öllum sínum aðgerðum og greip vel inn í þegar á þurfti. Varði síðan slakt víti Guðmundar til að kóróna leik sinn.

Atvikið

Vítaspyrnuklúður Framara, Fram voru síst lakari aðilinn hér í dag fengu tækifærin til að jafna en nýttu ekki þessi tækifæri. Því miður.

Hvað þýða úrslitin?

ÍA jafna HK að stigum á toppi deildarinnar á meðan Fram tapa sínum öðrum leik í röð í deildinni.

Vondur dagur

Guðmundur Magnússon var ekki góður í dag og hann er leikmaður í það háum gæðaflokki að við viljum sjá meira frá honum. Vítaspyrnan hans var slök og hann náði ekki ekki að fóta sig fyrir framan markið. Fyrsti leikur hans í deildinni í sumar sem hann er slakur svo það þýðir lítið fyrir Framara að væla yfir frammistöðu Gumma.

Dómarinn - 6

Elías dæmdi þennan leik vel að mínu mati. Það var gott flæði á leiknum og vítaspyrnudómurinn var hárréttur. Pedro þjálfari Fram vildi fá fleiri víti í leiknum og Gummi hefði líklega átt að fá víti í fyrri hálfleik en allt annað var rétt hjá Elíasi.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.