SKÝRSLAN: Eyjamenn rúlluðu yfir vonlausa KR-inga
Hvað réði úrslitum?
Heimamenn mættu miklu grimmari til leiks í dag og kláruðu KR-inga á fyrstu tíu mínútum leiksins. Eyjavörnin stóð fyrir sínu og lokaði á allar aðgerðir KR-inga.
Bestu leikmenn
1. Sigurður Arnar Magnússon
Strákurinn stóð sig eins og hetja í hjarta varnarinnar hjá eyjamönnum. Skoraði mark og lokaði vörninni. Frábær leikur hjá stráknum.
2. Priestley David Griffiths
Priestley var ótrúlega duglegur á miðjunni. Vann eins og hestur og var frábær. Ef ég mætti myndi ég gefa öllum leikmönnum liðsins bónustig. Fórnuðu sér allir fyrir málsstaðinn.
Atvikið
Samstuðið hjá Albert og Beiti var svakalegt. Albert náði sér ekki aftur á strik og þurfti að fara útaf. Þegar hann lá útaf vellinum og fékk aðhlynningu skoruðu ÍBV fyrsta mark leiksins.
Hvað þýða úrslitin?
ÍBV er komið upp í áttunda sæti deildarinnar og pakkinn verður bara þéttari. KR er í fjórða sæti með níu stig.
Vondur dagur
Allt KR-liði átti bara vondan dag í dag. Þeir verða að gera betur. Orð eru óþörf. Albert Watson átti kannski versta daginn í dag, mistök í vörninni og fór meiddur útaf.
Dómarinn - 7
Fín dómgæsla hjá Guðmundi, tímalaus snilld hjá tríóinu. Létu leikinn fljóta vel og dæmdu vel þau atriði sem komu upp.



