Fotbolti.net
Ingimar Helgi Finnsson
Inkasso deildin - 1. deild karla
JÁVERK-völlurinn
Hér er bongó!
Selfoss
Selfoss
2 - 1
Víkingur Ó.
Víkingur Ó.
Ivan Martinez Gutierrez 6'1 - 0Ingi Rafn Ingibergsson 37'2 - 02 - 162' Gonzalo Zamorano Leon
Dómari: Helgi Mikael Jónasson

SKÝRSLAN: Ingi Rafn enn og aftur drjúgur í sigri Selfyssinga

Hvað réði úrslitum?

Það var kraftur í Selfyssingum í þessum leik. Mikið jafnræði var með liðunum en þegar horft er á leikinn heilt yfir þá er þessi sigur Selfyssinga verðskuldaður. Selfyssingar héldu boltanum vel , en á meðan gekk Víkingum erfiðlega á síðasta þriðjungi vallarins, komust oft í góðar stöður en það vantaði hreinlega gæði til þess að skapa meira.

Bestu leikmenn

1. Guðmundur Axel Hilmarsson

Guðmundur átti mjög flottan leik heilt yfir. Hann og Stefán Ragnar stóðu sig vel í miðri vörn Selfyssinga. Guðmundur sem er fæddur 2001 sýndi og sannaði að hann getur vel spilað í Inkasso deildinni. Spennandi leikmaður og það verður gaman að fylgjast með honum í sumar.

2. Ingi Rafn Ingibergsson

Ingi er að eldast eins og gott rauðvín. Hann var sífellt ógnandi með hlaupum sínum á bakvið vörn Víkinga. Einnig var hann mjög duglegur í sinni varnarvinnu. Ingi hefur átt mjög gott tímabil hingað til og er markahæstur Selfyssinga með 3 mörk það sem af er móti.

Atvikið

Annað mark Selfyssinga var skrautlegt í meira lagi og verður Fran í markinu að taka skuldina á sig. Hann missti af boltanum í tvígang í teignum og Ingi þakkaði pent fyrir sig.

Hvað þýða úrslitin?

Úrslitin þýða einfaldlega að Selfyssingar lyfta sér upp í 8. sætið með tveimur sigrum í röð og eru þeir komnir upp að hlið Víkinga með 7 stig eftir 5 leiki.
Víkingar færast fjær toppbaráttunni og hljóta þeira að vera svekktir með uppskeruna hingað ti.

Vondur dagur

Hér hefði Fran í mark Víkinga alveg getað verið tilnefndur en ég ætla að segja að sóknarlína Víkinga í heild sinni verði að fá Vonda daginn skráðan á sig.
Miðað við það hversu oft þeir komust í góðar stöður þá náðu þeir ekki að skapa nægilega mikið af færum.

Dómarinn - 7

Helgi Mikael dæmdi þennan leik heilt yfir vel. Ekkert vesen á honum.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.