SKÝRSLAN: FH-ingar fyrsta liðið í undanúrslit Mjókurbikarsins
Hvað réði úrslitum?
Það var bara eitt mark skorað í þessum leik og það eru víst mörk sem ráða úrslitum í fótboltaleikjum. Skagamenn hefðu hæglega getið sett mark í þessum leik en svo fór ekki og FH-ingar komnir áfram.
Bestu leikmenn
1. Albert Hafsteinsson(ÍA)
Albert var lang besti leikmaður ÍA í þessum leik og besti maður vallarins. Búinn að koma gríðarlega sterkur til baka eftir erfið meiðsl.
2. Guðmundur Kristjánsson(FH)
Guðmndur var mjög góður í vörn FH í þessum leik. Stoppaði ófá upphlaup Skagamanna. Ekki amalegt að hafa svona reynslubolta í sínu liði.
Atvikið
Það er ekki annað hægt en að velja markið. Flott sókn hjá FH-ingum og Brandur kláraði vel. Markið réði líka úrslitum leiksins.
Hvað þýða úrslitin?
Við erum ekkert að flækja þetta. FH er komið í undanúrslit í Mjólkurbikarnum 2018 en Skagamenn detta út í 8-liða úrslitum annað árið í röð.
Vondur dagur
Þetta fær Þórður Þorsteinn Þórðarson. Þórður er flottur fótboltamaður en þetta var bara alls ekki hans dagur. Maður ætlast til að maður með hans reynslu eigi að spila betur í svona stórum leik fyrir Skagamenn.
Dómarinn - 7
Þannig lagað séð ekkert út dómarann að setja. Kannski einhver brot sem hann sleppti en ekkert stórvægilegt.



