SKÝRSLAN: Hjólari Katrínar stal senunni á Alvogen-vellinum
Hvað réði úrslitum?
Það sem réði úrslitum í kvöld var einfaldlega hversu miklu meiri gæði Stjörnuliðið hafði fram á við, voru sí ógnandi og hefðu vel getað skorað fleiri mörk.
Bestu leikmenn
1. Þórdís Hrönn Sigfúsdóttir (Stjarnan)
Þórdís átti frábæran leik í kvöld, skoraði eitt mark og lagði upp annað og var þar að auki stöðugt ógnandi í sóknaraðgerðum Stjörnukvenna.
2. Harpa Þorsteinsdóttir (Stjarnan)
Margar úr liði Stjörnunnar sem gera tilkall, en það er erfitt að horfa framhjá Hörpu sem skoraði tvö mörk og kom sér í marga góða sénsa þar að auki.
Atvikið
Meira svona atvik ársins í Pepsí deild kvenna þetta árið.
Stórkostlegt mark sem Katrín Ómarsdóttir skoraði með hjólhestaspyrnu eftir að hafa tekið boltan upp frá jörðinni í fyrstu snertingu, þið bara verðið að sjá þetta!
Stórkostlegt mark sem Katrín Ómarsdóttir skoraði með hjólhestaspyrnu eftir að hafa tekið boltan upp frá jörðinni í fyrstu snertingu, þið bara verðið að sjá þetta!
Hvað þýða úrslitin?
Stjarnan nær að minnka forskot toppliðanna og heldur því áfram í voninna að ná að ógna þeim af einhverri alvöru á meðan að KR-ingar eru áfram í fallsæti.
Vondur dagur
Vörn KR átti afsprynu slakan dag og ætla ég að setja þetta á hana Ingunni í miðverðinum, en boltinn fór mikið á milli eða yfir miðverðina hjá KR og þá gleymdi Ingunn sér meðal annars í fjórða marki Stjörnunnar.
Dómarinn - 8,5
Auðveldur leikur að dæma og því lítið hægt að setja út á störf Gunnars í kvöld.



