SKÝRSLAN: Stjarnan skín skært
Hvað réði úrslitum?
Úthald Stjörnumanna og hvernig þeir brugðust við því að lenda undir, með bakið upp við vegg.
Bestu leikmenn
1. Óskar Elías Zoega Óskarsson
Var eins og klettur í vörn Þórsara allan leikinn og virtist ekki tapa einvígi, á fótum sem og í lofti. Fórnaði sér í allt og límdi línuna saman lengstum.
2. Brynjar Gauti Guðjónsson
Stöðvaði skyndisóknir Þórsara oftar en samherjar sínir og þá sérstaklega á mikilvægum augnablikum í lokin. Var einnig manna hættulegastur í föstum leikatriðum Stjörnunnar fram á við.
Atvikið
Jöfnunarmark Stjörnunnar sneri öllu á hvolf. Þórsarar virtust hafa bæði tögl og högld á leiknum þegar Hilmar fór útaf en rétt eins og Þórarinn Ingi benti á eftir leik, þá þarf bara eina! Loftið virtist fara úr heimamönnum við þetta og annað mark fylgdi í kjölfarið. Stjarnan steig upp og nýtti meðbyrinn.
Hvað þýða úrslitin?
Stjarnan er komin í undanúrslit! Þórsarar kveðja Mjólkurbikarinn og haf Inkasso deildina til að einbeita sér að héðan í frá.
Vondur dagur
Það er erfitt að henda þessu á einn einstakling eftir svona mikinn baráttuleik þar sem allir gáfu allt sitt í leikinn. Því miður fyrir Þorra Geir Rúnarsson var allt hans eingöngu 14 mínútur, en hann þurfti að fara aftur útaf vegna meiðsla. Hann mun því þurfa einhverja fjarveru frá liðinu á næstunni.
Dómarinn - 8
Hélt góðri línu í gegnum leikinn og leyfði mikið. Engin óþarfa brot. Fannst aðstoðarmenn ekki alveg eins öruggir í sínum aðgerðum og Vilhjálmur hlustar á þá, sem dregur gengið örlítið niður.



