Fotbolti.net
Pétur Hrafn Friðriksson
Pétur Hrafn Friðriksson
Pepsi-deild kvenna
Víkingsvöllur
HK/Víkingur
HK/Víkingur
0 - 3
Selfoss
Selfoss
0 - 180' Magdalena Anna Reimus 0 - 282' Kristrún Rut Antonsdóttir 0 - 390' Alexis Kiehl
Dómari: Bríet Bragadóttir

SKÝRSLAN: Hrun HK/Víkings á síðustu 10 mínútunum

Hvað réði úrslitum?

Einbeitingarleysi HK/Víkings í mörkunum. Hleyptu Magdalenu í gegn í fyrsta markinu og slæm dekkning eftir stutt horn í öðru markinu.

Bestu leikmenn

1. Magdalena Anna Reimus

Mark og stoðsending með tveggja mínútna millibili. Átti marga góða spretti upp kantana og sýndi oft á tíðum mjög skemmtilega.

2. Karitas Tómasdóttir

Gríðarlega góð barátta í henni á miðjunni. Dugleg að vinna skallabolta og kom boltanum vel frá sér.

Atvikið

Ekkert nema fyrsta markið sem kemur til greina. Leikurinn hafði verið í járnum og ekkert sem benti til þess að Selfoss væri að fara sigra með þremur mörkum.

Hvað þýða úrslitin?

Selfoss slíta sig frá botnbaráttunni og eru komnar með átta stig, fimm stigum frá fallsæti. HK/Víkingur aðeins einu stigi frá fallsæti og hafa ekki unnið leik síðan í fyrstu umferð.

Vondur dagur

Björk Björnsdóttir fær þann vafasama heiður að hafa átt vondan dag. Kom boltanum illa frá sér og fékk á sig þrjú mörk, með smá heppni hefði hún getað fækkað mörkunum sem hún fékk á sig.

Dómarinn - 6

Bríet flautaði leikinn ágætlega. Hefði mátt draga fram gula spjaldið í upphafi leiks þegar Gígja straujaði Karitas og einhverjar óþarfa aukaspyrnur voru sem hún flautaði á.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.