Fotbolti.net
@maggimarkMagnús Þór Jónsson
Magnús Þór Jónsson
Pepsi Max-deild karla
Würth völlurinn
Létt gola, sólin glennir sig annað slagið og 19 stig á mælinum. Er það ekki fullkomið fótboltaveður bara?
Fylkir
Fylkir
3 - 0
ÍBV
ÍBV
Kolbeinn Birgir Finnsson 12'1 - 0Ásgeir Eyþórsson 45'2 - 0Geoffrey Wynton Mandelano Castillion 84'3 - 0
Dómari: Guðmundur Ársæll Guðmundsson
Myndir: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

SKÝRSLAN: Öruggur sigur í Árbæjarsól

Hvað réði úrslitum?

Byrjun leiksins. ÍBV einfaldlega mættu ekki til leiks fyrstu 20 mínúturnar, fengu á sig mark og náðu aldrei að grafa sig upp úr þeim skurði.

Bestu leikmenn

1. Kolbeinn Finnsson

Einfaldlega svindlkarl í dag. Skoraði strax á 12.mínútu og var allan leikinn á fullri ferð, sótti á varnarmenn af krafti og var gríðarlega duglegur í varnarvinnunni. Þessi strákur er sannkallaður "crowd-pleaser" og ég skora á alla að kíkja á leik með honum áður en hann heldur erlendis á ný!

2. Sam Hewson

Margir tilkallaðir hjá Fylki. Vel Hewson, hann er alvöru box-to-box miðjumaður sem að vinnur alls konar skítverk fyrir liðið sitt og heldur saman sókn og vörn.

Atvikið

Mark númer tvö. Síðasta sekúnda fyrri hálfleiks og ÍBV fengu minnst tvö færi til að hreinsa boltann í burt áður en Ásgeir setti hann í markið. Þá varð verkefnið vonlaust.

Hvað þýða úrslitin?

Fylkismenn sitja í 5.sæti fyrir leiki kvöldsins og á morgun og eru komnir í slaginn um Evrópusæti. ÍBV sitja fast á botninum og möguleikarnir á að halda sætinu verða stöðugt minni.

Vondur dagur

ÍBV liðið eins og það leggur sig fyrstu 30 mínúturnar, bara mættu ekki á völlinn. Löguðu sinn leik í seinni hálfleik en þó verð ég að taka Coelho út í vinstri bakverðinum. Karlanginn réð ekki við þetta verkefni.

Dómarinn - 8,0

Hélt sömu línu allan leikinn, leyfði töluvert og var ekki mikið að sveifla spjöldum. Frekar einfaldur leikur að dæma.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.