Fotbolti.net
Sverrir Örn Einarsson
Pepsi Max-deild karla
Víkingsvöllur
Nánast logn. hálfskýjað og teppið rennislétt og vel vökvað
Víkingur R.
Víkingur R.
2 - 2
Valur
Valur
0 - 17' Lasse Petry Andersen0 - 252' Sigurður Egill LárussonGuðmundur Andri Tryggvason 59'1 - 2Logi Tómasson 87'2 - 2
Dómari: Einar Ingi Jóhannsson

SKÝRSLAN: Logi hrellti Val aftur

Hvað réði úrslitum?

Áræðni Víkinga á síðasta þriðjungi síðasta fjórðung leiktímans. Þeir naga sig eflaust í handarbökin að hafa ekki skipt um gír fyrr og sótt til sigurs.

Bestu leikmenn

1. Birkir Már Sævarsson

Vindurinn blés ekki á völlinn en Vindurinn var svo sannarlega áhrifavaldur í leiknum. Birkir Már með tvær stoðsendingar og síógnandi með framhjáhlaupum á hægri vængnum.

2. Guðmundur Andri Tryggvason

Reyndi rosalega mikið og vann vel fyrir liðið. Átti marga spretti gegn Birki Má og hafði oft betur. skoraði gott mark.

Atvikið

Jöfnunarmark Víkinga. Gleðin var einlæg hjá Loga og áhorfendum sem að elska hann. Unga kynslóðin fór þar fremst í flokki.

Hvað þýða úrslitin?

Stigið gerir lítið fyrir liðin. Valur fer niður um eitt sæti í það sjöunda en Víkingar sitja í því tíunda á markatölu.

Vondur dagur

Þeir sem mættu ekki á völlinn!!! Sól og blíða, börger á grillinu og ískaldar veigar með ásamt skemmtilegum fótboltaleik. Júlíus Magnússon þurfti að fara af velli vegna meiðsla snemma leiks eftir að hafa fengið eitthvað í hnéð. Vonandi er hann ekki lengi frá.

Dómarinn - 5

Einar þarf að bæta leikskilning sinn og finna sína línu og halda sig við hana. Var samkvæmur sjálfum sér í upphafi en breytti svo línunni fór að flauta á allt eða ekkert. Hafði samt núll áhrif á úrslit leiksins.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.