SKÝRSLAN: Fyrsta jafntefli KA í sumar kom gegn ÍA
Hvað réði úrslitum?
Leikurinn var kaflaskiptur. KA menn voru stefnulausir í fyrri hálfleik og virtust ekki vera með neitt plan hvað þeir ætluðu að gera. Skagamenn voru þéttir fyrir og erfitt að finna glufur á varnarmúra þeirra. KA menn komu beittari til síðari hálfleiks og uppskáru jöfnunarmark. Sanngjörn niðurstaða þegar á heildina er litið.
Bestu leikmenn
1. Almarr Ormarsson
Skorar þetta mikilvæga jöfnunarmark KA og var góður á miðjunni. Lítið annað hægt að segja.
2. Tryggvi Hrafn Haraldsson
Hættulegasti leikmaður Skagamanna fram á við. Var síógnandi í fyrri hálfleik og áttu KA menn í mestu erfiðleikum með að ráða við hraða hans. Fékk dauðafæri til að koma Skagamönnum í 2-0.
Atvikið
Tvennt sem kemur til greina. Í stöðunni 1-0 fær Tryggvi Hrafn dauðafæri eftir frábæran undirbúnig Jóns Gísla en setti boltann í framhjá opnu markinu.
Þá vildu KA menn fá víti undir lok fyrri hálfleiks og virtust hafa nokkuð til síns máls.
Hvað þýða úrslitin?
KA menn koma sér uppúr fallsæti í bili og stöðva fjögura leikja taphrinu. Skagamenn eru í þriðja sætinu ennþá.
Vondur dagur
Torfi Tímóteus virkaði óöruggur í sínum aðgerðum í dag. Missti boltann á klaufalegum stöðum og átti misheppnaðar sendingar. Búinn að vera mikið meiddur í sumar sem að gæti enn haft áhrif á hann.
Dómarinn - 6
Að flestu leyti var leikurinn vel dæmdur hjá Erlendi. Hann fær mínus stig fyrir að sleppa víti sem að KA virtist eiga að fá. Var síðan full graður á spjöldin.



