SKÝRSLAN: Keflvíkingar loksins á sigurbraut
Hvað réði úrslitum?
Gott skipulag Keflvíkinga til baka og hinn ungi Gunnólfur Björgvin sem var réttur maður á réttum stað í tvígang.
Bestu leikmenn
1. Gunnólfur Björgvin Guðlaugsson (Keflavík)
Ekki annað hægt en að gefa Gunnólfi tiltinn "maður leiksins". Skoraði bæði mörk Keflvíkinga í kvöld.
2. Rúnar Þór Sigurgeirsson (Keflavík)
Erfitt að velja einhvern einn í þetta sæti, en ég ætla að gefa Rúnari Þór þetta, hann var mjög sprækur sóknarlega, átti margar flottar fyrirgjafir inná teig Framara og var öruggur í vörninni.
Atvikið
Sigurmark Gunnólfs er atvik þessa leiks, langt innkast frá Rúnari Þór, tveir skallar frá Keflvíkingum inná teginum, sá seinni í slánna og svo mætir Gunnólfur og skalalr boltann í netið.
Hvað þýða úrslitin?
Keflvíkingar fara upp í 7. sæti deildarinnar með 19 stig, stigi á eftir Frömurum sem sitja áfram í 6. sæti deildarinnar.
Vondur dagur
Erfitt að taka einhvern einn út fyrir sviga hérna. Ætla að nefna tvo Framara, þá Gunnar Gunarsson og Thiago.
Gunnar hefði alveg getað verið vísað af velli um miðjan fyrri hálfleik og leit á köflum ekki vel út þegar Keflvíkingar voru að sækja hratt á Framara.
Thiago nefni ég þrátt fyrir að hafa skorað mark Framara. Allt flæði í leik Framara stoppaði oft á tíðum á Thiago sem tók alltof mikið af snertingum á boltann og tapaði honum í stað þess að gefa boltann frá sér.
Dómarinn - 9
Ívar Orri var með alla dóma sem skiptu mestu máli á hreinu fannst mér í dag, hann hélt línunni vel og hafði góð tök á leiknum. Spurning hvort hann hefði getað sent Gunnar Gunarsson í sturtu, en ég held að hann hafi gert rétt þar.



