Fotbolti.net
@EgillSiEgill Sigfússon
Egill Sigfússon
Pepsi Max-deild karla
Meistaravellir
15 stiga hiti og toppaðstæður
KR
KR
2 - 2
Stjarnan
Stjarnan
0 - 129' Baldur Sigurðsson Tobias Bendix Thomsen (víti) 57'1 - 1Björgvin Stefánsson 80'2 - 12 - 293' Hilmar Árni Halldórsson
Dómari: Pétur Guðmundsson
Myndir: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson

SKÝRSLAN: Hilmar Árni bjargaði stigi á Meistaravöllum í blálokin

Hvað réði úrslitum?

Stjarnan voru töluvert sterkari aðilinn í fyrri hálfleiknum og voru verðskuldað yfir. KR voru svo miklu sterkari í seinni hálfleik og komust yfir en svo kom þetta langa innkast á 93. mínútu sem Hilmar Árni skallaði inn og kreisti fram jafntefli.

Bestu leikmenn

1. Hilmar Árni Halldórsson

Hilmar lagði upp fyrsta markið með frábærri aukaspyrnu og tryggði svo jafntefli í uppbótartíma þegar hann skallaði boltann inn. Allt í öllu í sóknarleik Stjörnunnar eins og vanalega.

2. Kristinn Jónsson

Kiddi var frábær í kvöld, fór illa með Jóa Lax trekk í trekk og var með sýningu oft á tíðum. Með hann í þessum gír upp kantinn skapast alltaf hætta.

Atvikið

Jöfnunarmark Stjörnunnar á 93. mínútu. Allt stefndi í 9.sigur KR í röð í deildinni þegar Hilmar Árni skallaði langt innkast Jóa Lax í netið á 93.mínútu og batt enda á sigurgöngu KR.

Hvað þýða úrslitin?

KR var búið að vinna 8 leiki í röð í deildinni og Stjarnan náði að binda enda á sigurgöngu þeirra hér í kvöld. KR er á toppnum með 7 stiga forrystu sem Blikar geta minnkað í 5 stig á morgun. Stjarnan er í 4.sæti með 20 stig.

Vondur dagur

Beitir Ólafsson. Beitir er búinn að vera frábær í sumar en það var afskaplega klaufalegt hjá honum að láta boltann fara í markið í fyrsta markinu. Hélt að boltinn væri að fara framhjá markinu og lét hann vera en inn fór boltinn. Beitir er búinn að setja þann standard á sig að maður vill ekki sjá hann gera svona mistök.

Dómarinn - 9

Mjög vel dæmdur leikur hjá Pétri. Man ekki eftir einhverju sem hann klikkaði á, vítið hárrétt og hélt góðri línu út leikinn.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.