Fotbolti.net
Oddur Stefánsson
Inkasso deildin - 1. deild karla
Eimskipsvöllurinn
Skýjað og smá gola
Þróttur R.
Þróttur R.
1 - 2
Fram
Fram
24' Helgi Guðjónsson (misnotað víti)0 - 128' Hilmar Freyr BjartþórssonArchange Nkumu 63'Róbert Hauksson 78'1 - 11 - 284' Jökull Steinn Ólafsson
Dómari: Ívar Orri Kristjánsson

SKÝRSLAN: Þróttarar halda áfram að tapa

Hvað réði úrslitum?

Það var Jökull Steinn og mark hans í lok leiksins. Leikurinn hefði í raun og vera getað fallið báðu megin en markið sá til þess að Framarar tóku þrjú stig í kvöld.

Bestu leikmenn

1. Róbert Hauksson (Þróttur)

Var virkilega flottur hjá Þrótti í kvöld og var sá leikmaður sem sýndi sín gæði hvað mest og skoraði síðan eina mark Þróttar í kvöld.

2. Marcao (Fram)

Var virkilega sterkur í vörn Fram í kvöld. Þróttarar reyndu mikið til að setja hann úr jafnveægi en hann skallaði alla bolta burt og var klettur í vörn Fram.

Atvikið

Þegar Arnar Darri varði vítið verður að vera atvikið. Hann er að verja víti í að minnsta kosti þriðja sinn á tímabilinu.

Hvað þýða úrslitin?

Úrslitin þýða að Þróttarar eru ekki ennþá öruggir um sæti í deildinni á næstu leiktíð. Framarar eru hvorki í toppbaráttu né fallbaráttu.

Vondur dagur

Félagarnir Jasper Van Der Heyden og Archie Nkumu áttu vondan dag í dag. Jasper ver settur inn á til að hræra upp í hlutunum og náði því ekki. Archie fékk seinna gula fyrir heimskulegt brot.

Dómarinn - 8

Ívar Orri dæmdi þetta vel. Hélt línunni vel og leyfði leiknum að fljóta vel.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.