SKÝRSLAN: Biðin eftir sigri á enda hjá ÍR
Hvað réði úrslitum?
Baráttugleði ÍR var til fyrirmyndar og skóp að mörgu leyti sigurinn. Einnig var frammistaða Sigrúnar Erlu, varamanns, mjög góð og átti hún stóran þátt í því þegar ÍR fékk vítaspyrnuna sem svo réði úrslitum.
Bestu leikmenn
1. Eva Ýr Helgadóttir (ÍR)
Flott í markinu og varði einu sinni stórkostlega frá Unu.
2. Fjórar jafnar næstbestar (ÍR)
Þær Brynja Dögg Sigurpálsdóttir, Sigrún Erla Lárusdóttir, Linda Eshun og Andrea Katrín Ólafsdóttir.
Miðverðirnir þrír og varamaðurinn sem kom öflugur inn á hægri vænginn.
Miðverðirnir þrír og varamaðurinn sem kom öflugur inn á hægri vænginn.
Atvikið
Vítaspyrnudómurinn.
Mér sýndist það vera Oddný sem átti skot eftir fyrirgjöf Sigrúnar og skotið fór í hönd Sigurbjargar, varnarmanns Grindavíkur. Breki hugsaði sig aðeins um en dæmdi svo víti sem ÍR skoraði úr. Svekkjandi fyrir Grindavík því það var lítið sem Sigurbjörg gat gert.

Hvað þýða úrslitin?
Fyrsti sigur ÍR og svo sannarlega langþráður. ÍR er fallið en stelpurnar vilja eflaust enda mótið með fleiri stig en fjögur.
Grindavík þarf að ná í úrslit í síðustu tveimur leikjunum ef ekki á að fara illa. Liðið er með 15 stig, líkt og Augnablik var með fyrir leik Augnabliks og ÍA í kvöld.
Grindavík þarf að ná í úrslit í síðustu tveimur leikjunum ef ekki á að fara illa. Liðið er með 15 stig, líkt og Augnablik var með fyrir leik Augnabliks og ÍA í kvöld.
Vondur dagur
Hornspyrnur liðanna í dag voru ekki upp á marga fiska og myndaðist sjaldan ef einhvern tímann hætta í kjölfar þeirra.
Dómarinn - 8
Heilt yfir flott frammistaða hjá Breka og gerði að mér fannst rétt í vítaspyrnudómnum. Ólukka hjá Grindavík þar.